En hefur stefna framsóknarflokksinns reynst íslendingum vel á síðari árum?

Nei.  Reynst afar illa.  Síðast keyrðu framsóknarmenn heimili, landið og lýð allan niður í svaðið með stórkostlegum skaða og tjóni sem innbyggjar eru enn að kljást við.    Við hvert asnastrik sem framsóknarflokkurinn framkvæmdi á þeim tíma, gekk maður undir manns hönd við að reyna að koma vitglóru í höfuð umræddra - án árangurs.  Og framkoma framsóknar endaði svo í allsherjar hruni í samstarfi við þá Sjalla sem vel er kunnugt.   Nú, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varð svo að koma og bjarga málum því enginn fékkst til að koma nálægt framsóknarhrægamminum sem vonlegt var. Síðan kom Jafnaðarstjórnin og vann þrekvirki og það er vel kunnugt líka.  Síðan komast framsóknarmenn að kjötkötlunum með bolabrögðum í samstarfi við sjalla og - hefjast þegar handa við að níðast á hinum verr settu og moka fjármunum undir eigin elíturass.    Og það athyglisverða er, að það er eins og framsóknarmenn njóti þess alveg sérstaklega að kvelja hina verr settu.  Það er eins og þeir fái kikk útúr því að hýða eigin þjóð með framsóknarsvipu og ásjóna þeirra framsóknarmanna er á meðan líkt og sambland af hrægammi og hýjenu.   
mbl.is Sigmundur hrósar Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hatur þitt út í framsókn á sér fáar hliðstæður.

Færðu verki með þessu?

Guðmundur Ásgeirsson, 13.12.2013 kl. 13:09

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Eg get eigi að því gert þó framsóknarmönnum ásamt sjallakurfum svíði sannleikurinn. Það er bara þeirra vandamál. Not mine.

Hitt er svo ljóst að svokölluð ,,hagsmunasamtök heimilinna" er svoleiðis gjörsamlega búin að gera sig að athlægi og að algjörum fíflum. Hugsa sér, að geta haldið því fram árum saman að umrædd skammstöfun, hh, væri í einhverri ,,baráttu" fyrir ,,heimilin í landinu" - þegar um var að ræða léttvæga og auðsveipa snata þeirra framsjalla. Og alveg merkilegt að hægt skuli hafa verið að halda því fram að engin tengsl væru á milli - þegar tengslin voru allan tíman augljós öllu hugsandi fólki.

Ja, það má að vísu segja að nefnd skammstöfun, hh, hafi verið sambland af fv. klappstýrum útrásarvíkinga og framsjöllum. En framsjallar og fv. útrásarvíkingar eru svo sem það sama.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.12.2013 kl. 14:59

3 identicon

Frekar vill ég Framsókn

en Steingrím sem gerði ALLT

sem AGS bað um svo vel

að þeir buðu honum að stýra Grikklandi 

Grímur (IP-tala skráð) 13.12.2013 kl. 16:12

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Bjálfaáróðursmaskínur framsjalla eru með allt á hælunum og skítafýluna leggur af þeim langar leiðir og einstaklingar sem hafa vitleysisblaðrað hvað mest fyrir nefnda flokka í umræðunni síðustu ár er persona non grada enda þora þeir ekki lengur að láta nokkurn mann sjá sig en skríða annaðslagið uppúr holræsum valhallar grímuklæddir.. Hugsa sér að framsóknarmenn og sjallar séu svo illgjarnir og illa innrættir að þeir njóti þess að sjá framsjalla pína og kvelja sína eigin þjóð.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.12.2013 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband