Framsókn: Svikin loforð allstaðar. Elítubætur á sínum stað.

Kosningaloforð framhörmungarinnar:   ,,setja „lyklalög“ sem geri lánþega kleift að afsala eign sinni til lánveitanda án þess að það leiði til gjaldþrots."

Efndir:  Framsóknarmenn segja við fólk í vanda:  Hundskist í gjaldþrot vesalingarnir ykkar!   Síðan hefja þeir framsóknarsvipuna á loft og lúberja hina verst stæðu í samfélaginu!

Það er ekki til aumingjalegri og hrægammslegri framkoma en framsóknarmenn hafa sýnt þjóð sinni.  Skömm þeirra mun uppi meðan land byggist.

Lofað var a.m.k 300 milljarða skuldarniðufelling fríkeypis og í framhaldi allt handa öllum og framsóknarparadís strax og fólk mátti ganga inn og út skilandi lyklum án nokkurra afleiðinga.

Nú nú. Svo ljúga framsóknarmenn og svíkja sig á ofanlýstan hátt að kjötkötlunum - og þá er framsóknarsvipan á loft og fólk í vanda er lúbarið! Síðan millifærsla frá hinum verr stæðu yfir til hinna betur stæðu sem eru í engum vanda og allt borgað úr ríkiskassanum.

Á meðan framsóknarmenn framkvæma sínar hörmungaaðgerðir þá eru þeir í framan eins og hrægammar.

Biskupinn syngur svo framsóknarsálma yfir hörmungunum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband