Sölustjóri hjá Kristjáni í Grjótinu: Það verður að semja um síldina. Pólitíkusar verða að leysa þessa þrætu.

Vekur athygli að sölustjóri Kristjáns í Grjótinu,   Pól Huus Sólstein, sem var eitt sinn hjá Granda, skuli gefa svo afdráttarlausa yfirlýsingu.   Kristján í Grjótinu fyrirtækið er afar virt í Færeyjum.  Þekki þá sögu ekki nógu vel en svo virðist sem ákveðin þekkt  ætt sé á bak við útgerðina.  

Sólstein segir að ESB svæðið sé svo mikilvægt varðandi sölu fyrir afurðir er Kristján í Grjótinu framleiðir að allir hnökrar þar á verði þungt högg fyrir fyrirtækið.

Sólstein segir að Lögmaðurinn með aðstoð danska forsætisráðherranns verði þegar í stað að setjast að samningaborðinu við ESB.

Þetta er merkilegt.  Væri sennilega kallað að sýna linkind hér,  í besta falli.

 ,,Vit noyðast at umskipa størsta partin av okkara virksemi, verður henda politiska trætan ikki loyst."

http://kvf.fo/Archive_Articles/2013/06/20/politikararnir-noyast-loysa-sildatrtuna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband