Forsætisráðherra framsóknarmanna var að segja að kosningaloforð hans um skuldarniðurfellingu yrði svikið.

Ekkert í líkingu við loforðið yrði framkvæmt.  Hann hlýtur að hafa verið að segja það drengurinn.  Annars hefði hann komið með eitthvað sem hönd var á festandi.    Stefnuræðan var bara það sama og samstarfsyfirlýsingin - nema að nú var hann líkt og að varpa ábyrgðinni á eigin kosningaloforðum, loforðum sem framsókn keypti atkvæði útá, yfir á allt alþingi!  Hann talaði eins og allt alþingi bæri ábyrgð á þessum loforðum sínum.  Loforðum sem einsdæmi eru í vestrænum heimi og gerir Berlúskóní bara sem saklausan kórdreng í samanburði.  

Staðreyndin er framsóknarflokkurinn er eitt reginhneyksli og sjallamannaflokkur er meðsekur honum í þessu hneyksli.  Fullkomlega meðsekur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband