Spaugilegir kjánaþjóðrembingsinnbyggjar og öfgamenn allrahanda.

Það er virkilega skondið að sjá núna hvert verður eitt að ,,stóru málum" framsjallaelítustjórnvalda hérna núna á næstunni.

Það verður að semja um Icesaveskuldina.

Svonefnt ,,skuldarbréf nýja Landsbanka til þrotabúss" sem kallast - það er ekkert annað en að semja um Icesaveskuldina.

Upphaflega var skuldin til 10 ára og aðeins vextir borgaðir fyrstu 5 árin.  Eitthvað 2% ofan á Libor.

Núna þarf að endursemja um skuldina til miklu lengri tíma.  þetta er ekkert annað en semja um Icesaveskuldina.  

Vextirnir eiga að hækka núna eftir þetta ár, minnir mig.  Um 3% ofan á Libor.  Sem er eitthvað 5-6% í vexti sennilega.  (Hef ekki flett því upp nýlega hvað Libor viðmiðið er núna.) 

Og það þýðir ekkert að láta svona.  Landsbankinn er í eigu ríkisins.  Allar skuldir hans eru skuldir ríkisins.  Auk þess sem allir eiga nú að vita núna hvað gjaldeyrisskuldir þýða fyrir Landskassann.

Það merkilega mun samt ske - að enginn mun kippa sér upp við að þeir framsjallar semji um Icesaveskuldina.  Vegna þess að enginn kraftur og fjármagn verður til þess að setja í hálfbjánapropaganda.  Enda elítan komin að kjötkötlunum og farin að háma í sig feitu bitana.  Til þess var leikurinn gerður. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband