Formaður Framsóknarflokks situr fyrir svörum á RUV: Einhver snautlegasta frammistaða stjórnmálamanns í manna minnum.

Og sérstaklega í samhengi þess hve mikið fylgi flokkurinn hefur fengið að undanförnu.  Það getur bara ekki verið að fólk ætli að fara að kjósa Framsóknarflokkinn í stórum stíl.  það stenst ekki.  

Svör formanns framsóknar varðandi þeirra höfuðmál, vonda útlendinga og hvernig eigi að fá frá þeim 400 milljarða, voru svo ruglingsleg og haldlaus að með fádæma og fáheyrðum ólíkindum var.

Aldrei þessu vant gerðu spyrlar u.þ.b 75% rétt í spurningum sínum.   Gerðu ekki eins og yfirleitt hefur verið gert, hann bara látinn mala, heldur fylgdu spurningum þokkalega röklega eftir - Formaður Framsóknar gat engu svarað!  Hann bara bullaði og enginn þráður í neinu í hans máli.

Algjörlega með ólíkindum snautlegt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Hvað er í grasinu þinu. Hvernig endist þú þessu rugli alla daga og suma þeirra með margar færslur í tómri steypu?

Benedikt V. Warén, 11.4.2013 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband