24.2.2013 | 02:22
Skemmtiatriði frá fundi furðuflokks Sjalla. (Video)
Frægt varð á fundi nefnds flokks um 2009 þar sem þeir settu upp leikritið um Ræningjana þrjá - og voru gagnrýnendur sammála um að afar vel hafi verið flutt og leikurinn allur svo eðlilegur að varla hafi verið greinanlegt að þeir væru að leika.
Nú, í þetta skipti settu þeir á svið leikþátt sem byggður er á biblíusögunum og þar samanvið fléttuð stefna Sjallaflokks og framtíðarlagasmíði. þá verður það þannig á næsta einveldistíma Sjalla að öll lagasetning mun byggjast á ,,boðorðunum tíu". Af leikþættinum er öll hin mesta skemtan en þó finnst sumum gagnrýnendum stykkið á köflum of absúrdkent.
![]() |
Kristin gildi ráði við lagasetningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ósköp eru þessi ungmenni illa að sér í "Boðorðunum", þ.e. Gyðinglegu gildunum og halda að þau endurspegli kristnu gildin. Kristur gaf boðorðunum "langt nef", taldi sjálfan sig guð, leyfði myndlistarmönnum að mála af sér myndir löngu eftir upprisu sína, læknaði á hvíldardögum Gyðinga, fyrirgaf syndir (sem Gyðingar töldu aðeins vera á færði Jahve), hafði samband við framliðna (þrátt fyrir skýlaust bann Gyðinga við slíku) og var í ástarsambandi við Maríu Magdalenu (sem guðspjöllin herma að hafi verið haldin 7 illum öndum) og kyssti hana beint á munninn að lærisveinum sínu ásjáandi.
Þeir vita greinilega lítið hvað þeir eru að blaðra um innihald kristindómsins, þessir ungu og miðaldra Sjálfstæðismenn.
Sigurður Rósant, 24.2.2013 kl. 14:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.