Innstæður í SNS Bank ótryggðar! LOL.

það sem er hinsvegar óvenjulegt við þetta er að bondholders svokallaðir, eða hltabréfaeigendur, taka hárklippingu, að því er virðist. Allavega hluti þeirra.

Nú ætti moggi að vera á tánum og upplýsa almennilega hvað hollendingar gera. Nægur er mannskapurinn á mogga til greina þetta mál.


mbl.is Hollenskur banki þjóðnýttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það verður spennandi að fylgjast með því hvort þeir greiða allar innstæður út núna eða hvort þeir mismuna á milli viðskiptavina hjá SNS og Icesave.

Það verður líka forvitinilegt að sjá hvort þeir framkvæma þetta á sama hátt, eða annan veg, heldur en Danir gerðu við Amager bank þegar hann rúllaði (þrotabúið borgaði lágmarkstryggingu og kröfur umfram það voru sóttar úr búinu í hlutfalli við endurheimtur).

En að setja bondholders í klippingu og setja innstæður í forgang er ekkert nýtt. Það er nákvæmlega það sama og var gert í tilviki Landsbankans. Einmitt þess vegna duga eignir þrotabúsins fyrir innstæðum. Nú verður forvitnilegt að sjá hvort Hollendingar hafa lært af þessari reynslu eða hvort þeir ætla að láta skattgreiðendur sína ábyrgjast þann mismun sem kann að vera.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.2.2013 kl. 11:38

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Eg efa að þeir hollendingar hafi breytt eitthvað kröfuröð eins og í tilfelli Íslands þar sem kröfuröð var breytt eftir á.

það er erfitt að átta sig nákvæmlega á þessu í smáatriðum samt, þar sem nákvæmari uppýsingar eru á hollensku. Í þessu tilfelli sem mörgum öðrum er það ekki einfalda myndin sem segir alla söguna. En fjölmiðlar eru þess eðlis oft, að þeir láta einföldu myndina nægja.

Manni skilst hálfpartinn að þetta sé allt gert í samræmi við EU laga og regluverk og viðkomandi dírektíf.

þetta er 4. stærsti banki Hollands. Með að vísu margvíslega starfsemi. Hollenska ríkið er að setja hundruði milljarða í þetta. Allavega tímabundið.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.2.2013 kl. 11:48

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hollenska ríkið á nú tvo af stærstu bönkum Hollands.

Með athafnir hollenska ríkisvalds, þá virðist sem ný lög um aðomu ríkis að bönkum hafi verið samþykkt í fyrra og tilgangur þeirra var að verja innstæðueigendur.

Hvernig nákvæmlega lögin eru skal eg eigi fullyrða um en svo er að skilja á sumum fréttamiðlum sem hlutabréf hafi einfaldlega þurkast út - en samt ekki gott að átta sig á því. Í einstaka fjölmiðli er svo að skilja að hlutabréfaeigendur og almennir kröfuhafar taki hluta af tapinu á sig.

En þetta er kallað náttúrulega þjóðnýting. Maður skildi ætla að hlutabréfeigendur misstu allt og sumir fjölmiðlar virðast skilja það svo. En það er samt óljóst, að mínu mati. Vantar frekari smáatriði og hvernig útfærslan nákvæmlega er.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.2.2013 kl. 12:51

4 identicon

Ég krefst þjófnýtingar bankanna! Látum pöbulinn borga fyrir syndir auðmanna! Rúum einstæðar mæður inn að skinni! Blóðmjólkum sjúklinga og öryrkja! En látum aldrei heyrast þá hneysu að við séum ekki borgunarmenn fyrir skuldum okkar! Borgum! Hlýðum! Og steinhöldum svo kjafti!

I slave (IP-tala skráð) 2.2.2013 kl. 05:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband