20.6.2013 | 18:46
Sölustjóri hjá Kristjáni í Grjótinu: Það verður að semja um síldina. Pólitíkusar verða að leysa þessa þrætu.
Vekur athygli að sölustjóri Kristjáns í Grjótinu, Pól Huus Sólstein, sem var eitt sinn hjá Granda, skuli gefa svo afdráttarlausa yfirlýsingu. Kristján í Grjótinu fyrirtækið er afar virt í Færeyjum. Þekki þá sögu ekki nógu vel en svo virðist sem ákveðin þekkt ætt sé á bak við útgerðina.
Sólstein segir að ESB svæðið sé svo mikilvægt varðandi sölu fyrir afurðir er Kristján í Grjótinu framleiðir að allir hnökrar þar á verði þungt högg fyrir fyrirtækið.
Sólstein segir að Lögmaðurinn með aðstoð danska forsætisráðherranns verði þegar í stað að setjast að samningaborðinu við ESB.
Þetta er merkilegt. Væri sennilega kallað að sýna linkind hér, í besta falli.
,,Vit noyðast at umskipa størsta partin av okkara virksemi, verður henda politiska trætan ikki loyst."
http://kvf.fo/Archive_Articles/2013/06/20/politikararnir-noyast-loysa-sildatrtuna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2013 | 14:44
Framsjallar ætla að senda eigendum sínum 10 milljarða gjafabréf. Heimilin í landinu hérna eru alveg gleymd og grafin.
Það gengur fullkomlega eftir það sem var fyrir séð að þeir Frasjallar mundi moka fjármunum úr þjóðarkjötkatli yfir til elítunnar í landinu. Almenningur fær svo reikninginn. Heimilin í landinu? Hahahaha!
,,10 milljarða gjafabréf til útgerðarmanna"
http://ruv.is/frett/%E2%80%9E10-milljarda-gjafabref-til-utgerdarmanna%E2%80%9C
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.6.2013 | 11:31
Færeyska þinghúsið er flott. (Mynd)
Húsið til vinstri er svo hluti af þinginu, að eg tel. Skrifstofubyggingar o.þ.h.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)