28.4.2013 | 17:57
Formaður loforðaflaumsbrasksflokks hefur ekki áhyggjur af því að krakkagrey geri miklar athugasemdir við mokstur flokksins til útvalinna úr þjóðarkjötkatlinum.
Og það er sennilega rétt mat. Næst á dagskrá er líklegast þetta:

![]() |
Gangi tiltölulega hratt fyrir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2013 | 15:36
Íslendingar kusu til Alþingis - og kusu að útlendingar ættu að borga skuldir þeirra.
Allt og sumt. Öll ósköpin.
Sko, hvað segir þetta almennt? Jú, þetta segir almennt og undirstrikar almennt - hve varasamt það væri að hafa öll mál alltaf opin fyrir já og nei spurningum í þjóðaratkvæðagreiðslum. Það er beinlínis varasamt og hugsanlega stórhættulegt fyrir lýðveldið Ísland.
Í stuttu máli undirstrikar þetta og feitletrar hve slíkt er varasamt. Þetta hafa margir ekki fengist til að skilja hingað til - en breytir þessi kostulega Alþingiskosning einhverju því viðvíkjandi? Maður spyr sig.
Annað væri hægt að íhuga líka - að er svokölluð þjóð búnin að gleyma atkvæðagreiðslunni um nýja Stjórnarskrá? Eg yrði ekkert hyssa þó margir væru bara búnir að steingleyma henni eða að þeir hefðu einhverja allt aðra skoðun á efninu en kom fram í þeirri atkvæðagreiðslu. Eg yrði ekkert mjög hissa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)