Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spánverjavígin eða spánverjaslátrunin 1615 er atburður þegar spænskir hvalveiðimenn urðu innlyksa á Íslandi. Þeir höfðu mikil verðmæti í fórum sínum. Festust í gjaldeyrishöftum, má segja.
Ari í Ögri, mikið hrottamenni, fékk almenning í lið með sér til að myrða spánverjana og stela góssinu.
Þarf eigi að lýsa aðförunum sem eru smánarblettur á íslandi enn þann dag í dag.
Að sumu leiti minnir þetta á upplegg framsóknarmanna, að breyttu breytenda auðvitað. því þarna á milli eru nokkur hundruð ár og tímarnir breytast. þeir ætla að stela 400 milljörðum af vondum útlendingum og hafa fengið almenning í lið með sér til verkanna.
Nú nú. En hvað skeði í tilfelli Ara í Ögri? Jú, hann hirti allt góssið sjálfur! Almenningur fékk ekkert nema blóðug föt spánverjanna sem íslendingar flettu klæðum og fleygðu limlestum líkunum í sjóinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)