5.11.2013 | 22:46
Mannvitsbrekkur Sjalla.
Það er með ólíkindum að fylgjast með þessu framsjallaliði sem meirihluti þjóðar kaus inná Alþingi. Hvað á þetta að þýða eiginlega!? Hefur þessi Sjalladrengur ekki heyrt um það að hann og framsjallar afléttu sanngjörnum álögum á sægreifa og 1% elítuna og færðu auknar byrgðar á herðar sjúklinga og hina verr stæðu í samfélaginu? Að þetta skuli svo ekki kunna að skammast sín og að þetta skuli voga sér að gapa og geipa framan í þjóðina útbólginn af sjallaóvitaskap.
Þetta var forgangsröðun Sjalla. Sægreifar og elítan geta hringlað hærra í gróðrarpungum sínum - en sjúklingar og hinir verr stæðu skulu fá að finna fyrir því! Ef þessir sjallaóvitar hefðu andskotast til að gera ekki neitt og haldið skynsamlegu ferli þeirra SJS og Jóhönnu áfram - þá hefði engan niðurskurð þurft og ekki hefði komið til þessi níðingsskapur gagnvart veikburða fólki sem Sjallar sína af sér núna. Þá hefði framsjallastóðið getað farið barasta beint á fyrsta farrými til Karabíska hafsins - og vonandi komið aldrei aftur.
![]() |
Vill að þingmenn sýni kjark |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2013 | 18:06
Leynimakk og leyndarhyggja framsóknarflokksinns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2013 | 14:17
Danskur sérfræðingur í þjóðarrétti: Það er merkingarleysa af færeyingum að kæra ESB til WTO.
Það hefur komist í fréttir að færeyingar hafi kært ESB til WTO. WTO hefur ekki dómsvald í slíkum efnum og ef WTO fellst á upplegg Færeyja þá hefur það enga aðra merkingu en þá, að Færeyjar gætu sett refsitoll á vörur frá ESB. Það hefði eðli máls samkvæmt enga búskaparlega þýðingu fyrir ESB. það segir Bracht Andersen sérfræðingur í fólkarétti:
,,Hóast heimshandilsfelagskapurin, WTO, gevur Føroyum viðhald í kæruni um, at ES hevur sett tiltøk í verk ímóti Føroyum, fær tað neyvan annan týdning, enn at Føroyar kunnu leggja toll á vørur, sum koma úr ES til Føroya. Orsøkin er, at WTO lítið og einki hevur at siga í stríðnum ímillum Føroyar og ES um uppsjóvarfiskin. Tað sigur danski lektarin í fólkarætti við Århus Universitet, Lars Bracht Andersen, við Ekstrablaðið."
http://kvf.fo/greinar/2013/11/04/wto-revsitollur-es-vorur-til-foroya
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)