Kosningaloforð framsóknar um feitan tjékka var ,,vangavelta" upplýsir fjármálaráðherra.

Þá er það mál bara frá.  Framsóknarmenn lugu sig feitt og big tæm til einvalda og Elítustjórnin er gjörsamlega búin að svíkja allt sem þeir lofuðu í aðdraganda kosninga.  

Þetta er alveg skelfilegt að hægt sé að ganga svona fram og algjör niðurlæging lýðræðis.

Eg er eigi að sjá aðra leið en almenningur sendi þegar í stað sendinefnd til þeirra dana og biðji þá að taka við þessu vesalings landi aftur. 


Innbyggjar hýddir af húsbændunum að þjóðlegum sið.

Eins og sjá má hér: http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1317462/ og hér:  http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1317595/  Þá var sá þjóðlegi siður ríkjandi á Íslandi öldum saman og að minnsta kosti fram á miðja 19.öld að þeir sem minna máttu sín voru hýddir reglulega af húsbændunum og meðal annars var föstudagurinn langi tekinn sérstaklega undir þann starfa og  mikil hátíðarhöld þar um til dýrðar elítunni.

Nú, þetta er alveg bara framhald af því.  Nú fer vöndurinn á loft og innbyggjar eru svoleiðis lúbarðir af Framsjöllum.  Nú er það enginn feitur tjékki.  Nei nei.  Vöndurinn á loft og almenningur kaghýddur.

Það merkilega er, að það er eins og almenningur láti sér þetta bara vel líka og kjósi beinlínis að ganga undir vöndinn.  

Besta ráðið fyrir allan almenning til að losna undi ægi- og ógnarvaldi  Framsjallaelítunnar væri að biðja þá dani um að taka við Íslandi aftur.


mbl.is Innheimta gjald fyrir legu á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbót við þjóðlegar hefðir innbyggja: Vinnufólk var líka hýtt á föstudaginn langa.

Eins og kemur fram hér:  http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1317462/   þá var sá siður ríkjandi öldum saman að börn voru hýdd á föstudaginn langa.  Hugmyndafræðin virðist hafa verið að börnin upplifðu þjáningu krists og mikið þjóðþrifaverk væri að áliti guðs.  Hin sama umsýslan var höfð með vinnufólk.  Enda litið svo á að vinnufólk væri einskonar framlenging á börnum eða bernskunni.  Því vinnufólk var náttúruega ósjálfráða mestanpart á íslandi og undir ægi og agavaldi húsbænda.

Þessi siður viðhélst að minnsta kosti fram á miðja 19.öld.  Hugsanlega lengur á einstaka afskekktum stað. 


Bloggfærslur 1. október 2013

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband