Færsluflokkur: Bloggar

Framsjallar breyta lögum sínum um 100 milljarða greiðslu frá almenningi til lánastofnanna. Alþjóðastofnanir hafa augu á framferði sjalla og framsóknarmanna.

Mjög sérkennileg uppákoma átti sér stað á þingi fyrir stuttu.  Sjallarnir og framsóknarmennirnir hentu inn texta þar sem svokallaðri ,,leiðréttingu" var breytt eða framkvæmd hennar.  (Athyglisvert að ekki heyrist múkk frá undirstofnunum framsjalla sem djöfluðust hér eins og hálfvitar undanfarin ár.  Eigi múkk.)

Þetta er aðalatriði breytinganna: ,,Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Þá skal önnur almenn lækkun eða niðurfelling fasteignaveðkrafna sem lögaðilar skv. 1. mgr. 2. gr. framkvæmdu frá og með 1. janúar 2008 og var sambærileg þeim úrræðum sem getur í b- og c-lið 1. mgr. og ekki telst til tekna samkvæmt ákvæði til bráðabirgða XXXVII í lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, dregin frá þeirri fjárhæð sem ákvarðast skv. 7. gr."

http://www.althingi.is/altext/144/s/0269.html

Þetta er alveg kostulegur texti.  Og í umræðunum um breytingarnar á þingi gerðu framsjallar sig að fífli og voru rasskelltir.

Eg er eigi hissa á því að Alþjóðlegar eftirlitsstofnanir hafi þá framsjalla orðið undir stöðugu eftirliti.  Ekki neitt hissa.  Þessir menn sem álpuðust inná þing fyrir flokka framsjalla virðast mestanpart hafa verið vitleysingar í besta falli. 


Þvílíkur dagur hjá ríkisstjórn elítunnar. Hún verður að segja af sér. Það er ekkert vit í öðru.

Ég veit ekki hve mörg hneykslismálin og/eða skandalarnir voru í dag hjá ríkisstjórn hinna auðugu og sérhagsmunaklíka ýmisskonar.  Eg hef bara aldrei orðið vitni að öðru eins.  Orð fá ekkert lýst uppákomunum.  

Það er alveg augljóst að það er eitthvað mikið að.  

Það verður að segjast eins og er, að svo virðist sem ríkisstjórnin samanstandi mestanpart af vitleysingum og séu lítið annað en strengjabrúður stórlaxa sem stjórna á bakvið tjöldin. 

Þetta gengur ekki svona lengur.  Ríkisstjórnin verður að segja barasta af sér og kosningar sem fyrst eða allavega fyrir jól.

Það verður virkilega ömurlegt jólahaldið hérna með þessa eindæma óhæfu og vanhæfu yfirsér sem Ójafnaðarstjórn framsjalla er. 

Því verður ekki trúað að óreyndu að framsjallar ætli að halda áfram að böðlast og níðast svo á þjóðinni.  Eg trúi því bara ekki að óreyndu.  Það má þá vera meiri andsk. mannvonnskan hjá framsjöllum. 


Framsjallar ráðast afmyndaðir í framan af illsku, froðufellandi af hamslausri bræði, á menntakerfið.

Það var viðbúið af óbermisflokkum elítunnar og ofur-auðugra,  þeirra framsóknarmannaflokks og sjallabjálfaflokks.  Auðvitað er öll menntun alþýðu eitur í þeirra beinum.  Menntun er aðeins fyrir elítuna að áliti framsjalla.  Áfram halda þeir dag eftir dag, linnulaust, að ráðast að þjóðinni, seilast í vasa almennings og moka undir elíturassa ss. LÍÚ-Klíkuna.

Ástandið hérna í sjallafásinni og framsóknarmannahelsi er að verða svo ömurlegt að orð fá tæplega lýst. 


Framsjallar innleiða þrjár reglugerðir um sameiginlegar Evrópskar Eftirlitsstofnanir með fjármálamarkaði.

Grunnatriðið er að verið er að innleiða ESB kerfi sem kölluð hafa verið EBA, ESMA og EIPOA.  

,,Samkomulag vegna innleiðingar reglugerða um evrópskar eftirlitsstofnanir á fjármálamarkaði.

Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra, sótti fund fjármálaráðherra aðildarríkja EFTA og ESB í Lúxemborg í dag. Á fundinum náðist samkomulag milli aðila um meginatriði við innleiðingu þriggja reglugerða um evrópskar eftirlitsstofnanir á fjármálamarkaði.

http://www.fme.is/utgefid-efni/frettir-og-tilkynningar/frettir/samkomulag-vegna-innleidingar-reglugerda-um-evropskar-eftirlitsstofnanir-a-fjarmalamarkadi

Mynd náðist af svokölluðum fjármálaráðherra framsjalla þegar hann og Hr. Michel Barnier, ESB ákváðu þetta.  Frá vinstri,  Adrian Hasler Liechtenstein, BB fjármálaráðherra framsjalla, Jensen Noregi og Hr. Barnier ESB:

2014-10-14-EEA-EFTA-EU-ECOFIN-700

 

 


Enn ljúga framsjallar. Eru alltaf sí-ljúgandi. Ráðast svo að alþýðu manna með þjóðrembingslurki og lúberja.

,,Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir þrjátíu prósent lægri heildarútgjöldum fjögurra manna fjölskyldu en Hagstofan gerir. Miðað er við sömu rannsókn í báðum útreikningum.

Fjármálaráðuneytið hefur kynnt útreikninga sem stuðst er við í frumvarpi um breytingar á virðisaukaskatti. Þar kemur meðal annars fram hve mikla peninga fólk noti til matarinnkaupa. Ráðuneytið kveðst nota neyslukönnun Hagstofunnar við útreikningana. Í útreikningum ráðuneytisins er meðal annars gert ráð fyrir að heildarútgjöld fjögurra manna fjölskyldu séu 465.000 krónur á mánuði. Það er um 200.000 krónum lægri upphæð en fram kemur í Rannsókn á útgjöldum heimilanna sem Hagstofan vinnur, sem er sama rannsókn og ráðuneytið studdist við. Rósmundur Guðnason, sviðsstjóri efnahagssviðs hjá Hagstofunni, veit ekki hvernig stendur á því að svo miklu munar á tölunum.

http://www.ruv.is/frett/matarinnkaup-raduneytisins-miklu-laegri


Icesaveskuld þeirra framsjalla, forseta og almennra þjóðrembinga fyrir dómstólum. Fer hugsanlega fyrir EFTA dómstólinn.

,,Bretar og Hollendingar krefjast þess að fá greitt allt það fé sem til er í sjóðnum, hvort tveggja það sem til var þegar greiðsluskylda stofnaðist vegna Icesave og þess fjár sem greitt hefur verið í sjóðinn síðan þá. Forsvarsmenn íslenska tryggingasjóðsins vilja vísa málinu frá dómi vegna breytinga sem gerðar hafa verið á kröfugerð. Tekist verður á um það í næsta mánuði. Þá deila íslenski og breski innstæðutryggingasjóðirnir um það hvort og þá hvaða spurningar eigi að leggja fyrir EFTA-dómstólinn við afgreiðslu málsins. Íslenski sjóðurinn telur íslensk lög skýr í þessum efnum og enga ástæðu til að leita álits EFTA-dómstólsins, eins og Bretarnir hafa farið fram á."

http://www.ruv.is/frett/vilja-visa-mali-hollendinga-fra-domi


Sjallar létu einkafyrirtæki útí bæ fá gjaldeyrissjóð alþýðu manna. Alvörumyntin fór bara síðan einhvern andskotann! Enginn veit hvert. Allt í gúddý segja sjallar. Við megum´ða.

Eða í raun var það bara einn sjalli sem tók gjaldeyrissjóð þjóðarinnar si sona og lét útrásarvíkinga hafa hann.   Um 100 milljarða.  Forsætisráðherra fv., hann Geir sjalli, hann hélt að peningurinn ætti að fara til Bretlands og bjarga bönkunum - og hann telur að hugsanlega hefði verið hægt að bjarga bönkunum ef peningarnir hefðu farið þangað!  80 milljarðar sirka.  

Eigi fylgdist hann með því hvert peningarnir fóru en frétti það á skotspónum löngu löngu seinna - að peningarnir hefðu bara farið einhvern andskotann!

Þetta segjast sjallar mega gera án þess að geta vísað í nokkra lagaheimild sér til stuðnings.


mbl.is Gjaldþrota með lánshæfiseinkunnina A
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland vs Holland í boltasparki á Laugardalsvelli. Lítið reynt á íslenska liðið í þeim tveim leikjum sem af eru riðlakeppni.

Frammistaða mótherja Íslands þeirra tyrkja og letta var með fádæmum slök.  

Og það kom á óvart.  Tyrkir voru ekkert líkir sjálfum sér þegar þeir voru á Laugardalsvelli á dögunum.  

Sú skýring hefur komið á sérkennilegri spilamennsku þeirra, að þeir séu ekki vanir að spila á svo litlum velli og hafi enganvegin verið nægilega undirbúnir.  Ísland gekk á lagið og landaði óvæntum sigri frekar fyrirhafnarlítið.

Þá kom að lettum.  Vitað var að Lettland er ekki með svo sterkt lið um þessar mundir en hafa sýnt að þeir geta varist og kunna skipulag.

 En spilamennska þeirra gegn Íslandi var fyrir neðan allar hellur og hreinlega vekur furðu hve lélegir þeir voru.

Kostulegt var að sjá markvörð letta gera sig sekan um svo barnaleg mistök sem sjá mátti í fyrsta markinu, á afar krítísku augnabliki í leiknum - og þar með færa Íslandi sigur á silfurfati.

 Úthlaup eða hliðarhlaup hans var algjörlega útí bláinn og byrjendur í fótbolta læra strax að svona á aldrei að gera.   Sérstakt að sjá slík mistök á A landsliðsleveli.

Vegna ofansagðs er í raun fyrsti alvöru leikur Íslands á morgun.  Þá mun sjást hver raunverulegur styrkur íslenska liðsins er.  

Og verður mjög fróðlegt að sjá hvernig strategíu liðið ætlar að leika gegn hollendingum.  

Það mun allt koma í ljós á morgun. 

 


mbl.is Hollendingar án Pieters
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frétt dagsins af framsóknarmönnum: Ólöglegir LÍÚ styrkir.

,,Framsóknarflokkurinn tapaði 19,1 milljón króna í fyrra. Styrkir frá fyrirtækjum námu hins vegar rúmum 20 milljónum. Samkvæmt lauslegri skoðun fréttastofu komu um 40% þessara styrkja frá fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi. Tvö fyrirtæki veittu hærri styrki en leyfilegt er. Skinney-Þinganes styrkti flokkinn um 440 þúsund og Einhamar Seafood styrkti flokkinn um 462.750 krónur..."

http://www.ruv.is/frett/tveir-styrkir-til-framsoknarflokks-of-hair

Eg veit ekki hvernig sagan endalausa af framsóknarhneykslum ætlar að enda.  Þetta hyski kann enganvegin að skammast sín frekar enn sjallakúkur í lauginni.

Gjörspillt hyski allir sem einn:

framsokn-thingflokkur_0

 


Það er þessi sem er með hálstak á Bjarna, Sjöllum, Framsóknarmönnum, forseta og almennum þjóðbelgingum.

,,Andrea Leads­dom, (Leiðrétting mín: Leadsom)  und­ir­ráðherra fyr­ir efna­hags­mál í breska fjár­málaráðuneyt­inu, hef­ur á síðustu vik­um átt í tals­verðum sam­skipt­um við Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, vegna máls­ins..." (mbl.is)

97671587_LEADSOM_315948c

 


mbl.is Bretar þrýsta á útgreiðslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband