Það er mikið að um helmingur reykvíkinga vilji barasta ESB án samnings. Það er mjög eftirtektarverður munurinn á milli Höfuðborgar og Landsbyggðar. Það sýnir vel að um óhjákvæmilega þróun er að ræða. Það er líka umhugsunarvert hve afstaða fólks er rokkandi. Það er soldið þannig að ef ferli er í gangi, - þá hefur fólk tilhneigingu til að kippa að sér hendinni en um leið og reynt er að setja lok á pott, - þá snýst fólk. Allt er þetta mikið áhyggjuefni fyrir ofsa-sinnaða andstæðinga Evrópusambandsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2015 | 22:43
Formenn stjórnarflokkanna, þeir SDG og Bjarni, grípa fram fyrir hendur velferðarráðherra.
Í húsnæðis/leigumálunum og fleiri félagsmálaatriðum. Grípa fram fyrir hendur Eyglóar, setja hana útí horn og taka málaflokkinn til sín og ætla að nota hann sem skiptimynt í samningum við vinnumarkaðinn. Alveg ótrúleg framkoma. Og framsóknarmenn taka þátt í þessu. Ráðherrann bara settur útí horn, SDG og Bjarni ráða. Alveg merkilegt að verða vitni að þessu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2015 | 10:58
Þetta er ástæðan fyrir því að skagfirðingum fækkar.
Fólk flýr svona málflutning ráðamanna skagfirðinga, fyrst og fremst framsjalla og þeirra stór-fyrirtækja, sem hafa alla þræði þarna í hendi sér: ,,Ekki virðist styrkur Norðurlands vestra byggðalega vera í samræmi við sterka stöðu KS sem utanríkisráðherra hampar, því Norðurland vestra stendur nú verst allra svæða samkvæmt úttekt Hagstofunnar. Þannig nam fækkun íbúa í Skagafirði 1,7% milli ára og víða er fækkun í nálægum byggðum."
Með sama áframhaldi rústa framsóknarmenn svæðinu algjörlega.
Vilja að Birgitta biðjist afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.5.2015 | 21:36
Framsóknarmenn og sjallar láta fjarlæga nafn Íslands af lista.
Eigi verður þetta nú til hagsbóta fyrir land og lýð. Landið bara hverfur! Rétt eins og það sé ekki til lengur. Mjög óskynsamlegt af ríkisstjórninni að leggja sérstaka áherslu á að afmá nafn Íslands á umræddum lista. Ekkert nema skaði sem verður af þessu. Umsóknin að Sambandinu heldur svo bara áfram sinn gang. Eru ekki sjallar og framsókn með um 30% fylgi? Jú. Stefnir í nýja ríkisstjórn eftir í mesta lagi tvö ár.
Ísland af lista yfir umsóknarríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2015 | 15:52
Hljómar afleitlega.
Eg veit ekki hvað stjórnvöldum gengur til en allt þeirra tal í sambandi við samninga og aðgerðir ríkisstjórnar þar að lútandi, - virkar barasta álíka og tal útí bláinn.
Muni hagnast fyrst betur stæðum en síður verr stæðum. Og þetta er framlag þeirra til samninga. Hljómar illa.
Lægsta þrepið verður lækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2015 | 16:53
Hefur virkilega ekkert gerst á Alþingi í dag?
Engar fréttir. Ríkisstjórnin virðist svo langt frá því að vera að halda tímaáætlun í vinnslu sinna mála. Það gerist ekkert. Jú jú, það er tuddast eitthvað um völlinn, frekjast eitthvað áfram og oftast lendir allt í handaskolum hjá stjórnvöldum. Það eina sem þeir hafa gert er að færa fjármuni frá verr setta hluta samfélags yfir til hins betur setta. Að öðru leiti virðast þessir menn bókstaflega ekkert geta gert.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2015 | 01:46
Þó að ríkisstjórnin falli ekki þá hefur hún misst allt traust og umboðið er gríðar veik.
Talsvert hefur verið rætt um hvort ríkisstjórnin falli núna í sumar eða hvort stjórnarflokkarnir komi sér saman um að hanga á stólunum sem hundar á roði. Stjórnin virðist ekki ætla að segja af sér og það er spurning hvort sjallaflokkur gæti samt viljað mynda nýja stjórn með nýjum flokkum. Framsóknarflokkurinn hefur misst allt umboð sem hann fékk 2013. Misst allan trúverðugleika. Það er ekkert traust.
Ef framsókn og sjallar ákveða að hanga á þessu í tvö ár, - þá er stjórnin samt orðin svo veik að erfitt er að sjá hvernig hún ætlar að leysa stóru málin er bíða. Það sem er mest einkennandi fyrir vinnubrögð þessar hægri-stjórna er hve hún er óprófessíonal. Ótrúlegt hve þeir geta klúðrað miklu þessir freku kallar. Það er ekkert langtíma plan. Engin heildarhugsun. Það er bara böðlast um völlinn og reynt að frekja sig áfram með tilheyrandi yfirgangi gagnvart hinum lakar settu í samfélagi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2015 | 22:46
Það fréttist ekkert af millifærsluskýrslunni og afnámi gjaldeyrishafta.
Hvorutveggja var að búið að boða. Í fyrsta lagi átti að koma mikil skýrsla um dreifingu niðurgreiðslu íbúðarlána og í annan stað er von á lögum sem afnema gjaldeyrishöftin meira eða minna. Stjórnvöld lofuðu því.
Það fréttist ekkert. Og það er skrítið. Hlýtur að vera allt mestanpart tilbúið og sérstakt að ekkert berist út um efnisinnihald.
Best gæti eg trúað að lítið sé um efnisinnihald í báðum atriðum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeir náttúrulega plötuðu fólk dáldið mikið í kosningunum 2013, sögðust ætla að gefa því fullt af pening maður og eg veit ekki hvað og hvað. Paradís barasta.
Sumir mundu segja að þeir hafi logið og svikið sig að kjötkötlunum.
Ríkisstjórnin er ekkert annað en fólkið.
Þettar spurning hvort fólkið ætlar að taka ráðin í sínar hendur, - eða hvort það ætlar að láta freka kallinn leika lausum hala á Þinginu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Og þar bera höfuð sökina framsóknarmenn, forseti og almennir þjóðrembingar. Lánakjör ríkis eru ekki eins ákjósanleg og gætu verið. Það bara útaf því að ofantöldum aðilum langaði svo að segja fokkjú við útlendinga. Það þarf að borga stórt lán hérna, erlent, baran núna í ár eða næsta, - og það verður tæplega gert nema með endurfjármögnun. Landið er skuldugt. Bæði í erlendri og innlendri mynt. Fyrirtæki og sveitarfélög eru svo líka stórskuldug. Hvert 0.1% telur í vaxtakostnaði. Eg er ekki að sjá að neinum gjaldeyrishöftum verði létt hér á næstunni. Það sem gæti gerst er að íslenskir stórir aðilar fengju einhverja rýmkun með fjárfestingar erlendis o.þ.h.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)