6.12.2013 | 02:08
Sjallar afar óánægðir með sprelligosaleiksýninguna í Hörpu.
Það er ljóst að meginþorri sjalla er mjög óánægður með þróun mála varðandi skuldaloforðarvitleysisrugl framsóknarmanna sem þeir hafa svikið og ætla nú að redda sér með snúningi á ríkiskassanum upp á gamla góða framsóknarlagið. Blaðamaður á viðskiptablaðinu er mjög harðorður í garð ríkisstjórnarinnar og kallar þær vondar, óskynsamlegar og óréttlátar. Augljóst er að mikil reiði kraumar undir niðri í sjallaflokki:
,,Tillögur ríkisstjórnarinnar um skuldaniðurfellingar fela í sér þjóðnýtingu einkaskulda og eru þess vegna ekki réttlátar.
Tillögur um skuldaniðurfærslu sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson kynntu, ásamt Sigurði Hannessyni, um síðustu helgi eru tvímælalaust ein af stærstu fréttum ársins. Þessara tillagna hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu og segja kunnugir að bæði fasteignamarkaðurinn og skuldabréfamarkaðurinn hafi borið þess merki. Ýmsir segja að tillögurnar séu hófsamari en þeir áttu von á í upphafi. Það breytir því ekki að þessar tillögur eru hvorki skynsamlegar né réttlátar.
Þær eru ekki skynsamlegar vegna þess að það blasir við að fjármögnun þeirra er háð óvissu. Slitastjórnir Kaupþings og Glitnis telja að skattlagning þrotabúanna stangist á við ákvæði stjórnarskrárinnar. Málshöfðun er því fyrirsjáanleg. Hvernig svo sem þau málaferli fara, er vægast sagt ótraustvekjandi að hugsa til þess að ríkið ætli að útdeila 80 milljörðum króna af fé sem ekki liggur fyrir hvort það geti aflað sér.
...
http://www.vb.is/frettir/99319/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.12.2013 | 12:30
Hvernig á að reikna upprisuna? Hvar er reiknivél framsóknarmanna??
,,En aðalatriðið er að um leið og tillögurnar eru kynntar getur fólk í raun reiknað með verulegri vissu áhrifin fyrir sig." (svokallaður forsætisráðherra framsóknarmanna) http://www.ruv.is/frett/bodar-upprisu-millistettarinnar
Hvernig á að reikna þetta? Ætla þeir simmi&jói að reikna þetta sjálfir fyrir fólk?
Það er alveg ljóst að það getur verið flókið reikningsdæmi að reikna hvað einstaklingar hugsanlega fá úr ríkiskassanum vegna þessara tillagna sem kynntar voru á leiksýningu í Hörpu.
Það að ekki skuli vera staðið við loforðið um að allir gætu reiknað út stöðuna - bendir til að það eigi eftir að koma taka 3 á kosningaloforði framsóknarmanna.
Taka 1: Loforð uppá 300 milljarða fríkeypis og mjög vondir útlendingar áttu að borga og í framhaldi allt fyrir alla og Paradís.
Taka 2: 80 millarðar úr ríkiskassanum sem fara fyrst og fremst til vel stæðra og þeirra sem enga aðstoð þurfa.
Taka 3: ???
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2013 | 23:52
Endalaust rugl á ríkisstjórn framsjalla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2013 | 16:08
Ójafnaðarstjórnin bregst þjóðinni. Talar ekki málstað Íslands á alþjóðavettvangi og kynnir frábærleikann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2013 | 01:51
Þetta er ekki alveg rétt hjá honum.
Vegna þess að í þessari könnun er prófað í lesskilningi. Menn geta alveg lesið mjög hratt og með réttum áherslum - án þess að skilja textann! Sem dæmin sanna td. með kosningapropaganda sjallaflokks - að þá kannski les fólk og les á fullum hraða - en áttar sig enganvegin á að um propaganda er að ræða og í raun snúist sjallaflokkur um að hygla hinum best stæðu á kosnað hinna verr stæðu. Nú, annað dæmi má nefna framsóknarflokk. Þar verða um 300 milljarðar fríkeypis og í kjölfar allt fyrir alla og Paradís, að því að 80 milljörðum er ausið úr ríkissjóði undir verkstjórn Brynjars Níelssonar aðallega til hinna best stæðu í þjóðfélaginu. Þarna reynir á lesskilning. Ef hann væri til staðar - þá mundi framsjallaflokkur náttúrulega aðeins fá um 20% max samanlagt.
Lesskilningur í þeirri merkingu sem prófað er í könnuninni, má lýsa í mjög stuttu máli sem færni til að tengja textann saman í eina heild, mynda samhengi, átta sig á aðalatriðum/aukaatriðum, og getað varpað upp mynd eða myndum af textanum í huga sér og látið hann meika sens og þar kemur til bakgrunnsþekking eða reynsla, orðaþekking og orða/hugtaka skilningur. Færni í meðförum texta og geta tengt hann saman, fattað aðalatriðin og nýtt sér hann til progressive hugsunar beisiklí.
Þarna hlýtur að skipta huge miklu máli bara reynsla. Að lesa bækur. Lesa hefðbundinn texta. Lesa greinar. Lesa fræðandi efni. Samtal um texta eða umhugsun. etc. etc. Því æfingin skapar meistarann.
Þetta verður augljóslega ekki allt kennt í skóla. Það vita allir sem reynt hafa hve mikill tími fer í lestur bóka, greina, fræðandi rita. Það gerist oftast heimavið eða í frístundum þó vissulega skólinn styðji við það eða geti vel gert það.
Þannig að það þarf ákveðið hugarfar hjá einstaklingi til að lesa og fræðast eða beina tíma og orku inná ofannefnda braut. Spurningin gæti alveg verið hvað stjórnar hugarfarinu eða afstöðunni.
![]() |
Þetta eru hræðilegar niðurstöður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2013 | 20:19
Það er orðið þannig að þegar framsóknarmenn opna á sér munnin, að þá reiknar fólk fastlega með að þeir séu að ljúga. Forsætisráðherra uppvís að lygi.
,,Formaður Framsóknarflokksins sagði fyrir kosningar að endurreikningur verðtryggðra lána ætti að miðast við hvað lánin hefðu hækkað umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Tillögur ríkisstjórnarinnar nú miða hinsvegar við 4,8 prósenta verðbólguþak. Leiðréttingin er því minni en ella."
http://www.ruv.is/frett/leidrettingin-minni-en-ella
Þessu eru framsóknarsnatarnir að mótmæla útum allt net! Hahaha. Frmsóknarsnatarnir sem húsbóndinn sigaði útá völlinn og hvatti þá til að ráðast líkt og bolabítar gegn hverju þeim sem héldi uppi málefnalegri gagnrýni eru geltandi og glefsandi að hugsandi fólki sem bendir á einföldustu staðreyndir og neitandi og þrætandi fyrir Loforðið sem framsóknarmenn gáfu í aðdraganda kosninga 2013.
Að framsóknarmenn skuli ekki kunna að skammast sín er alveg óskaplegt og það vrður bara að senda framsóknarmenn á eitthvert námskeið í siðferði. Framsóknarmenn haga sér eins og eitthvert krimmagengi. Framkoman er þannig og frægir lekar staðfesta svo það sem hugsandi fólk hefur margbent á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.12.2013 | 15:57
Þarna kemur skýringin á fylgi framsjallaflokks.
![]() |
30% drengja lesa sér ekki til gagns |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.12.2013 | 23:02
Það er ekki hægt fyrir ríkisvaldið að skikka þrotabú í gjaldþrotameðferð að núgildandi lögum.
Nú segir trúðurinn sem stundum er kallaður ,,forsætisráðherrann" að hann ætli að setja lög sem mundu leiða til að gömlu bankarnir ,,yrðu neyddir í gjaldþrotaskipti"
http://www.vb.is/frettir/99199/
Í fréttinni á vb kemur fram að talið í sumum rugludöllunum hérna uppi undanfarin misseri - var bara það. Rugl. Það var ekki hægt fyrir ríkið að skikka þrotabúin í gjaldþrotaferli. Þau réðu því sjálf!
Reyndar er efasamt að lög sem trúðurinn er að tala um núna stæðust alþjóðasamninga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.12.2013 | 18:34
Ríkisstjórn framsjalla lendir í vanda. Þarf að svara spurningum á málefnalegan hátt.
![]() |
Krefst svara um leiðréttingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.12.2013 | 22:49
Ójafnaðarartillögur Ójafnaðarstjórnarinnar munu líklega lækka lánshæfismat ríkissjóðs.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)