Israel vill sprengja palestínubúa til Miðalda

sem þýðir að þeir vilji þurka þá út og koma í veg fyrir að þeir geti stofnað ríki. Og allt framferði israela í gegnum áratugina í samræmi við það. Bjarni og Sjallar sjá ekkert athugavert við það. Mjög ánæðgir með slíkt og gera engar athugasemdir. Í framhaldi setja þeir dæmið upp eins og um átök á jafnréttisgrundvelli sé að ræða og enginn aðstöðu eða aflsmunur sé þar á. Í rauninni lýsa Sjallar stuðningi við framferði og villimennsku israela. Og það kemur svo sem ekkert á óvart og sínir vel eðli Sjallaflokks.

mbl.is Loftárásir gerðar af báðum aðilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Israelar hika. Landhernaður settur á hold. Gazabúar hafa langdrægar varnarflaugar.

Israelar héldu áfram villimannlegum loftárásum sínum á almenna borgara í Gaza síðasta sólahring. Yfir 100 myrtir, aðallega almennir borgarar. Ljóst er að þeir eru tilbúnir með landher við Gazaströndina sem bíður aðeins eftir merki til frekari morða og villimennsku. En þeir hika. Skýringin er sennilega eingöngu þær fregnir að tekist hafi að smygla langdrægum varnarflaugum frá Iran inn til Gaza gegnum Sinaí. þær drífa líklega til Tel Aviv og Jerúsalem. það hræðast israelar enda alls óvanir að þeim sé andæft á nokkurn hátt.

Færeyingar leita ráða á Íslandi varðandi stjórnskipan.

,,Íslendingar skulu siga føroyingum, um tað loysir seg at hava fólkaatkvøðu til tess at loysa ósemjuna um stjórnarskipanaruppskotið.

Landsstýrismaðurin í innlendismálum, Kári P. Højgaard, fer at spyrja íslendingar um royndirnar av at hava fólkaatkvøðu um stjórnarskipan. Hann fer um mánaðarskiftið til Íslands á vitjan, har hann fer at hitta íslendska innanríkisráðharran, Øgmund Jónasson."

http://www.kringvarp.fo/Archive_Articles/2012/11/19/spyr-islendingar-til-rads-um-stjornarskipan


þegar Ísland átti Grænland.

Eg benti á þá tísku sem upp kom á Íslandi á 20. öld sem snerist um að íslendingar ættu í raun Grænland. Sjá hér:
http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1269012/
http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1268948/
http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1268948/

Að þetta byrjaði fyrir 1920 en stigmagnaðist eftir fullveldið og þá barasta í fúlustu alvöru. Menn skrifuðu langar og lærðar greinar um þetta og allt fór svo inná Alþingi og td. Jón Þorláksson var áhugasamur um efnið. Ennfremur er líkt og sjómenn og/eða útgerðaraðilar hafi á seinni stigum verið mjög áhugasamir.

það er ljóst að meginpartur innbyggjara hafi verið sammála þessu. Að Ísland ætti bara Grænland rétt si sona.

Í fyrstu lotu hættu stjórnvöld og Alþingi við að halda uppi málinu vegna aðallega skrifa eða ráðgjafar Einars Arnórssonar. Málið hvarf þó ekkert. Var yfirleitt kallað ,,Grænlandsmálið". Alltaf dúkkaði þetta upp aftur og það sama var fram fært. Náði alveg framundir 1960! Held að megi setja punkt við hugmyndina um 1956. þetta er alveg ótrúlega lengi. Bara í gær!

það er eins og menn skammist sín fyrir þetta núna og vilji svona sópa undir teppið og gleyma. Ef menn tala um efnið þá er svo að skilja að 1-2 menn hafi viljað umrætt ss. Einar Ben. Var bara ekki þannig. þetta virðist hafa verið afar útbreytt og almennt samþykki hjá innbyggjurum þó Einar Ben, hafi etv. verið með fyrstu mönnum að detta í hug og skrifa um þetta.

það sem maður rekur strax augun í ef rýnt er í þetta er - yfirgengileg kjánaþjóðremban. það vekur líka athygli að það er eins og það búi enginn á Grænlandi eða að innbyggjar þar séu barasta núll og nix og skipti engu. það er sérlega áberandi. það var ekki fyrr en alveg í lokin þarna um 1955 að einhverjir fóru að benda á að íbúar Grænlands ættu Grænland. Ma. af Bjarna Ben. forsætisráðherra og fl., aðallega óbeint, þegar endanlega var þaggað niður í þessum einkennilegu hugmyndum. Í restina var það Pétur Ottesen þingmaður sem hafði mikinn áhuga á að krefjast yfirráða á Grænlandi en hann var samflokksmaður Bjarna.


Íslendingar ráðist fyrirvaralaust inn í Grænland

og hefji þar atvinnurekstur. ,,Og ef Danir gera íslenzkum mönnum ónæði á GrænIandi, á íslenzka stjórnin samkv. þjóðarétti, að leggja hald á danskar eignir á Íslandi eða við Ísland til tryggingar því, að skaðabæturnar verði að fullu greiddar af Dönum."

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=319642&pageId=4990693&lang=is&q=Gr%E6nlandsm%E1li%F0


Afleiðingarnar af kjánaatkvæðagreiðslunum um skuldarmálið koma í ljós

smám saman. Gengur allt eftir er eg varaði ítrekað við. það er alveg ljóst, þó enginn þori að segja það upphátt nema algjörlega óháður sjálfstæður stjórnmála- og samfélagsrýnir eins og ég, að Ísland og innbyggjarar eru barasta úti. það er einfaldlega sagt við íslendinga hvar sem þeir koma: Vertu úti vinur. Ekkert flókið.

Nú keppast menn við að upphugsa eihverja ráðagerð til að lappa upp á fíflaganginn. Einna helst koma menn upp með það - að stela meira! Stela meira.


Grænland er enn að réttum lögum eign Íslands.

,,Það er aðeins löglaust danskt ofbeldi, er hindrar það, að Alþingi og landsstjórn vor fari þar með lögleg stjórnarvöld."

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=312977&pageId=4861666&lang=is&q=Gr%E6nland%20%EDslands


Ætla stjórnvöld að svíkja í Grænlandsmálinu?

,,Menn heimta, að Grænland verði aftur gert að lifandi hluta úr vorri ættjörð, að íslenskir söngvar hljómi þar aftur i klettunum, að islenskir leikar verði aftur leiknir á leikvöllum feðra vorra, að íslensk vögguIjóð verði aftur sungin þar í islenskum stofum, að hver hæð og laut, hver tindur, hver dalur, hver vogur, hver vík, er eittsinn báru íslensk nöfn, fái aftur íslensk heiti, og að guð vors lands hljómi sem vorboði nýrra tíma yfir helguðum þingvelli feðra vorra að Görðum."

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=287578&pageId=4210061&lang=is&q=Gr%E6nland%20Gr%E6nland


Ég hef beðið eftir þessu

og hissa á að þetta spil hafi ekki verið sett út fyrr. Að vísu hafa 2-3 gert það með einum eða öðrum hætti eða veifað því má segja. En núna er bókstaflega lagt til að innbyggjar steli af vondu útlendingunum yet again. Alveg ljóst að þetta verður mjög til vinsælda fallið. Ekki frumlegt - en svínvirkar á innbyggjara.
mbl.is Að steðjar vá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú liður að kosningum og senn verður vart þverfótað fyrir þingmannakandídötum

sem leggja munu áherslu á að varkárni og ráðdeildarsemi í fjármálum innbyggjara, jafnt einstaklinga sem fyrirtækja. þeir munu leggja áherslu á í öllum þáttum að hyggilegt sé að leggja peninga fyrir og þá helst til langs tíma, byrja smátt og reisa sér eigi hurðarás um öxl o.s.frv. og tala um það fram og til baka. Ennfremur munu þeir leggja áherslu á að grundvöllur lánastarfsemi er að einhver leggi fé inní banka. þeir munu án efa, margir, leggja til að verðtrygging verði almennt sett á innlán en ekki gerð krafa um þriggja ára binditíma eins og nú er.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband