Frámununalega furðulegt viðtal við forsætisráðherra á Reuter.

Þar segir hann að svokallaðir samningar við kröfuhafa taki mörg ár.   Sá sem skrifar greinina skýtur þá inní, að forsætisráðherra hafi sagt í júní að þetta gerist barasta á þessu ári.

,,It certainly hasn't gone as fast as we hoped ... but we expected that it could take years even,"  said Gunnlaugsson, who in June predicted that a deal could come as early as this year."

 http://www.reuters.com/article/2013/10/30/us-iceland-creditors-idUSBRE99T0ZQ20131030

Í framhaldi er viðtalið allt svo frámunalega vitleysislegt - að mann setur bara hljóðan, altso. 


Verklausa og duglausa ríkisstjórnin missir það endanlega.

Að tala svona út og suður, norður og niður, er svo skaðlegt fyrir landið og lýðinn að óskaplegt er uppá að horfa.  Þessi Ójafnaðarstjórn elítunnar er gjörsamlega vanhæf ríkisstjórn.  Einhver vanhæfasta ríkisstjórn sem sögur fara af.  Skynsamlegast væri að flokkarnir sem standa að Ójafanaðarstjórninni myndu kunna að skammast sín og segja af sér áður en verulega illa fer.  En þeir kunna náttúrulega ekki að skammast sín.  Þvi fer sem fer.  Regluleg rústalagning á landi og lýð.
mbl.is Dregur ríkisábyrgð á ÍLS í efa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vogunarsjóðir og íslenskir bankar.

Mikið hefur verið rætt um vogunarsjóði hér uppi, oft kallaðir af pólitískum lýðskrumurum hrægammar o.s.frv.  Umræðan er oft á tíðum þannig að mætti halda að vogunarsjóðir ættu bankanna 100%.

Kíkjum á staðreynd:  Vogunarsjóðir eiga minnihluta í Glitni:

,,Af 50 stærstu almennu kröfuhöfum í þrotabú Glitnis eiga 15 bankar 30,60% og 2.9991 aðrir almennir kröfuhafar 20,46% af samþykktum almennum kröfum. 35 sjóðir eiga samanlagt tæpan helming samþykktra krafna eða 48,94%. Aðeins hluti þeirra sjóða eru vogunarsjóðir.Þetta kemur fram í skjölum sem kynnt voru kröfuhöfum á kröfuhafafundi Glitnis í morgun og Viðskiptablaðið hefur undir höndum. Fimmtíu stærstu kröfuhafar í þrotabú Glitnis eiga samtals 79,54% hlut heildarkrafna."  http://www.vb.is/frettir/78622/

2012 er bara eitthvað brot af kröfum í eigu vogunarsjóða í Glitni.  Annar stærsti eigandinn er Landsbankinn.  15 bankar eiga um 50%.  

Þarna sést undireins að eigandahlutfallið er allt öðruvísi 2012 en ætla mætti af tali pólitískra loddara. 


Af hverju eru vextir háir á Íslandi?

Ástæðan er einföld.  Heitir íslensk króna.  Háir vextir fylgja íslensku krónunni.  Íslensk króna hefur alltaf verið handónýtur gjalmiðill enda hvergi nokkursstaðar litið á nefnt fyrirbrigði sem gjaldmiðil nema hér uppi í fásinni af einhverjum 300 þúsund hræðum.  Alveg merkilegt hve þetta sáraeinfalda atriði vefst fyrir mörgum.  Svo væla menn og skæla og stökkva á allskyns fáránleg vitleysis töfratrikk sem ómerkilegir pólitíkusar babúa um.  

Histerían gagnvart Rómafólki heldur áfram. Ljósleitur maður sást á Kýpur - og var með Rómafólki! Ergó: Það hlýtur að vera enskt barn sem hvarf fyrir 20 árum.

Svo er myndbandið sýnt útum allan heim og lögregluyfirvöld fara að leita að þessum manni í Rómahverfum.  Fjölmiðlar spila svo undir á af miklum ákafa.

Það síðasta sem fréttist var að maðurinn gaf sig fram við lögregluyfirvöld á Kýpur.  Sagt hann sé frá Rúmeníu og hafi verið að heimsækja kærustuna sína á Kýpur. 


mbl.is Myndband af manni sem líkist Ben
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það virðist ekki vera hægt að vísa í neinar heimildir um að kröfur á íslensku bankana hafi verið seldar á 1,2,3 eða 4% á uppboði í London 2008.

Þar af leiðandi er talið hérna undanfarin misseri bara bull.  Það virðist akkúrat ekkert vera til sem bakkar upp talið.  Sem er auðvitað stórmerkilegt.  Það getur enginn vísað í neinar heimildir þessu viðvíkjandi.

Eg hef nefnilega kannað málið og um allt annað var að ræða en að kröfur væru seldar si sona á uppboði.  Þetta sneri að því að sumir lánveitendur tryggðu sig fyrir hugsanlegu tapi í gegnum CDS dæmið sem er ógurleg flækja.  Við gjaldþrot fer af stað ákveðið ferli sem líka er flókið og það ferli var í fyrsta sinn virkt í Evrópu með þroti íslensku bankanna.  Þetta ferli fer í gang samkvæmt ákveðnum prótókól er aðilar máls hafa samþyggt og viðurkennt.  Í tilfelli íslensku bankanna fengu þeir lánveitendur er höfðu tryggt sig nánast allt til baka.  Þeir sem seldu trygginguna sátu uppi með skellinn - og að öllum líkindum fóru viðkomandi kröfur þá yfir til þeirra. 


Voru kröfur á íslensku bankanna seldar á 1,2,3 eða 4% á uppboði útí London 2008?

Ef svo - hvar eru heimildirnar?  

Í framhaldi, hefur fólk heyrt talað um CDS?  Að í vissum tilfellum geta lánveitendur keypt tryggingu vegna lánveitinga og hlutabréfakaupa eða veðsetningar  sem tekin er varðandi lánveitingar?

Eg hef heyrt það.  Síðan í defálti, þá geta þeir endurheimt hluta upphæðarinnar og jafnvel mestalla.  Það er í gegnum ákveðið ferli sem erfitt er að skýra í stuttu máli.  Það sem gerist þá er oft að sá sem gaf út trygginguna verður að borga upphaflegum lánveitenda en á móti eignast hann veðsetninguna fyrir láninu.

Þetta er nú dáldið merkilegt, að mínu áliti. 


Hvar eru heimildir um að kröfur á íslensku bankanna hafi verið seldar á uppboði í London 2008 á 1,2,3, eða 4%?

Helst á því að þetta sé bara mýta og/eða einhver vitleysa ásamt própaganda.   Í raun hafi verið um allt annað þar að ræða en útlistað er gjarnan hér uppi í fásinni.   Oft talað um að kröfur á Landsbankann hafi verið seldar á eitthvað 1%.  Eg verð að segja að ég næ ekki alveg samhenginu - eh eru menn að segja að forgangskröfur í Landsbankann hafi verið seldar á 1%?  Er ekki í lagi!

Þetta er vísbending, að mínu mati, að hér ekki  allt sem sýnist eða eins einfallt og sumir vilja halda fram hér uppi.   Um var, sennilega,  allt annað að ræða en beinlínis kröfur á bankanna.   

Staðreyndin er að mörg þau félög sem halda á kröfum á bankanna núna, eru einfaldlega bara þar til gerð félög, svokallaðir hold-out sjóðir, sem sérhæfa sig í að meðhöndla slíkar kröfur sem dráttur verður á að séu greiddar.  Vegna þess að það hentar betur að hafa slíkar kröfur í sérstökum félögum en ekki hafa þær almennt með öðrum rekstri eða rekstrartölum, í stuttu máli. 


Forsætisráðherra framsóknarmanna upplýsir tilgang svokallaðs ,,sérfræðingahóps".

Megintilgangur ,,snillingahópsins" er að reikna niður feita gúmmítjékkann þeirra framsjalla:

,,Hvaða viðmiðun sem menn gefa sér þá er allavega ljóst að þetta er töluvert lægra en þessir þrjú hundruð milljarðar sem einhvern veginn og einhvers staðar skutu upp kollinum. Þetta er líka töluvert lægra heldur en aðrar tölur sem oftast hafa verið nefndar."

http://www.dv.is/frettir/2013/10/27/skuldaleidretting-heimilanna-kostar-enga-300-milljarda/

Þetta var fyrirséð.  Nú er spuninn byrjaður af alvöru.  Spunarokkar framsjalla á fullu.

Stay tuned. 


Framsóknarmenn desperat. Finna ekki forsætisráðherra. (Myndband)


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband