Hægri-Öflin hafa misst alla stöðu. Ríkisstjórnin er týnd.

Það er óhætt að segja að fljótt skipast veður í lofti í íslenskri pólitík.  Hægri flokkarnir sem lofuðu fólki fullt af pening fyrir síðustu kosningar og komust þannig með svikum og prettum að kjötkötlunum, hafa molast niður og virðast nánast rústir einar.  

Ríkisstjórnin virðist horfin og læðist með veggjum enda hvert floppið á eftir öðru komið úr þeim ranni.  Ríkisstjórnin virðist ekkert geta gert almennilega, - nema náttúrulega að seylast í vasa þeirra verst stæðu og færa auðmönnum.

Það sem situr þá eftir og vekur ugg, er hve auðveldlega hægri-öflin fífluðu kjósendur 2013.  Það situr eftir og er umhugsunarvert.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband