Augljóslega er allt í rugli hjá ríkisstjórn.

Maður sér það alveg á helstu forsvarsmönnum hennar þegar hægt er að draga þá fram úr skúmaskotum sínum og láta þá svara fyrir gjörðir sínar.  Þeim er brugðið.  Þeir fara undan í flæmingi og sannfæringarmátturinn er enginn.  Þeir eru hræddir við eitthvað.  

Það er einhver fjárinn í gangi sem haldið er leyndu fyrir þjóðinni.  Svokallaður forsætisráðherra sést náttúrulega ekki frekar en vanalega, er nánast aldrei í vinnunni,  og þorir ekki að tjá sig nema á vernduðum framsóknarfundum á framsóknarstöðum.

Sennilegast er,  að allt er í þvílíka ruglinu og ráðleysinu hjá ríkisstjórninni.  Þeir eru einfaldlega að rústa landi og lýð með óvita- og afglapahætti sínum, eins og eg hef marg bent á.

Ok. menn nefna hagtölur og sona - en málið þar er, - að það byggist allt á ráðagjörðum Jafnaðarstjórnarinnar á síðasta kjörtímabili og þá aðallega að þakka SJS og Jóhönnu.

En samkv. plani Jafnaðarstjórnarinnar átti að nota þennan sterka grunn sem þau byggðu til að jafna hægt og bítandi kjör manna á millum í landinu og auka hag og velsælds lands og innbyggja.

Sjallabjálfarnir og framsóknaróbermin eru að eyðileggja þetta allt saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hata krata.

Pakkakíkir (IP-tala skráð) 26.11.2014 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband