21.4.2015 | 16:26
Framsóknarmenn enn að vesenast með icesaveskuld þeirra sjalla.
Svo er bara sagt, rétt si sona, að málið sé komið til alþjóðlegra dómsstóla. Alþjóðlegra dómsstóla. Þessu hefur verið haldið kyrfilega leyndu í aflæstum skuggalegum bakherbergjum. Enginn fær að vita neitt, bíðum við! Málið komið til alþjóðlegra dómsstóla! Halló.
Hvað eru framsóknarmenn, forseti og almennir þjóðrembingar eiginlega búnir að kosta þjóðina? Í þessu máli hafa þeir dregið mörg hundruða milljarða skaðakostnaðar skuldaklafa yfir landið sem þeir hafa troðið með fruntaskap á herðar innbyggja með yfirgenglegu lýðskrumi og hafa sýnt af sér svo óábyrga hegðun að ólýsanlegt er.
Skýra afstöðu stjórnvalda til málsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
21.4.2015 | 16:03
Framsjallar ætla að hafa ferðabissnesinn áfram í ruglinu og braskinu.
Það var vitað mál að þegar svokallaðir ráðherrar framsjalla komu með þennan náttúrupassa að það var bara blöff. Þeir ætluðu aldrei að gera neitt í þessum málum. Í þessu sem og öðrum málum verður því áframhaldandi óstjórn og ófriður. Þeir eru að rústa landinu þessir menn. Virkilega ömurlegt hvernig framsjallar koma fram við landið og þjóðina. Ömurlegt. http://www.visir.is/natturupassinn-er-daudur-a-althingi/article/2015150429804
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2015 | 11:44
Nú er komið nóg framsjallar. Skilið lyklunum!
Þvílíka bullið sem er í kringum þetta framsjallalið sem laug og sveik sig að kjötkötlunum og hafa staðið þar síðan með spillinguna upp að öxlum við að moka fjármunum frá þjóðinni yfir á sinn elítudisk. Þetta er bara orðið gott. Svik og lygi eru framsjalla ær og kýr. Núna steyta þeir hnefana að þjóðinni sem farin er að malda í móin yfir ofsa-framferði framsjallaelítunnar. Og það er bara rétt að byrja. Framsjallar eiga eftir að verða hamslausir af græðgisbræði þegar þeim verður fleygt í burtu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2015 | 00:02
Ráðherra Sjálfstæðisflokksinns tekur tæpa 2.5 milljón úr sjóðum almennings og eyðir í ímyndarsköpun og PR Í Lekamálinu.
,,Kostnaður innanríkisráðuneytisins vegna fjölmiðlaráðgjafar vegna lekamálsins nam alls 2.394.300 krónum. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni þingmanni Pírata. Þá nam kostnaður við lögfræðilega ráðgjöf tæplega 860 þúsund krónum."
http://stundin.is/frett/fjolmidlaradgjof-vegna-lekamalsins/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)