15.4.2015 | 18:48
Misheppnuð árás Jósefínu Witt á Draghi seðlabankastjóra.
Jósefína þessi er vel þekkt í þýskalandi og var í mótmælunum við heimsókn Pútíns, minnir mig. Síðan mótmæltu hún og fleiri í Túnis og hvort þær voru ekki handteknar þar og einhver rekistefna spannst af milli landa. Hún hefur augljóslega náð að koma sér gegnum öryggiseftirlit á þeirri forsendu að hún væri blaðamaður en sumir hafa bent á að það öryggiskerfi sé ekki uppá marga fiska fyrst það síaði ekki Jósefínu Witt úr.
Í samhengi atburða undanfarna mánuði og misseri var þessi uppákoma hjá Jósefínu alveg misheppnað, að mínu mati. Þarna feilaði hún algjörlega. Ráðast svona og hrekkja gamlan mann að ósekju og í tilgangsleysi er ekki sniðugt.
Henni var svo sleppt bara si sona eftir klukkutíma og þá fór hún beint á twitter, að því er sagt er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2015 | 09:28
Bjarni staðfestir að ekkert nýtt er í gangi varðandi höftin.
Þetta er sama áætlun og unnið hefur verið eftir í mörg, mörg ár.
Ísland þarf að taka formleg lán, helst til lengri tíma, og stabílesera þannig fjármagnsflæði.
Það er ekkert nýtt í þessu.
Enda eru stuðningsmenn óskapar- og hörmungarstjórnarinnar ansi kindarlegir núna eftir að hafa látið sdg og framsóknarmenn gera sig að fífli.
Spunarokkar hægri-stjórnarinnar eru síðan hægilegir í sínum spuna og þvættingi.
Blönduð leið við afnám hafta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)