Katar í úrslitaleikinn.

Margir eru hugsi yfir framgangi Katar íHandboltanum.  Liðið er mestallt aðkeypt.

Svo kemur dómaraumræða í kjölfarið.

Það verður að segjast,  að manni fannst halla á andstæðinga Katar í dómgæslunni rétt eins og í leiknum gegn þjóðverjum.

Það breytir því ekki samt, að Katarliðið er geysisterkt og samæft.

Þeir eru mjög líkamlega sterkir og manni fannst dómararnir leyfa þeim að beita öllum kröftum í blokkeringum og sona.  Þeir sem sáu leiki Katar gegn Þjóðverjum og Pólverjum tóku kannski eftir hve færi katar voru stundum opin og á heppilegum stöðum.  Það var oft vegna þess að blokkeringarnar voru svo svakalegar og átökin sem voru leyfð voru að mínu mati úr takti.

En ok., það er eitt að leyfa harðan leik, - en þegar dómarnir lögðust heldur með öðru liðinu, - þá er mjög erfitt að eiga við svona líkamlega sterkt lið og Katar.

Þegar dæmt var ruðningur á annað liðið kom hinumegin í álíka tilfelli víti og tvær mínútur o.s.frv.  Það voru nokkur svona atvik og þá á krúsíalt augnablikum.

Að öðru leiti var dómgæslan í heildarramma í þá átt að leyfa það sem hentaði Katar liðinu, td. mikla hörku og hörð líkamleg átök.

En frakkarnir eiga að taka Katar liðið léttilega ef allt er með felldu.  


mbl.is Hef aldrei séð annað eins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun Katar komast í úrslitin?

Mikið hefur verið rætt um handboltalið Katar þessa dagana.  Katar einfaldlega keypti nokkra menn frá nokkrum löndum og settu í landsliðið.

Vissulega er þetta lið vel mannað og frekar sterkt, - en margir telja að dómgæslan í leik Þjóðverja og Katar hafi mjög verið hagfelld Katar.

Það er ekki hægt að horfa framhjá því að svo var.  Sérstaklega þegar líða fór á leikinn og þjóðverjar settu á fullt og reyndu hvað þeir gátu.  Það komu trekk í trekk stórfurðulegir dómar.

Ok., nú er vel vitað að dómarar gera mistök.  En í þessu tilfelli voru þá mistökin svo mikið öll á aðra hliðina að tilviljun er mjög ólíkleg til skýringar.

Þetta kom svo vel fram í hvernig Katar fékk að spila afar langar sóknir og fengu alltaf aukakast og annan séns, eins og kallað er, - þangað til mark var skorað.

Markvörður þjóðverja sagði við fjölmiðla:  Í þessum leik var það nú þannig, - að við gátum ekki unnið Katar.  Það var búið að ákveða annað.

Það er alveg hrikalegt fyrir handboltann að fá svona ummæli og að það skuli vera hægt að rökstyðja það jafnvel og með Katar/þjóðverjar leiknum.

Reyndar má segja að talsvert svipað hafi verið uppi í leik Spánar og Danmörkur.  Manni fannst í heildina halla á Danmörku í dómgæslunni.

Sem dæmi, þá er það alveg rétt hjá Guðmundi að þar kom þessi sami tendens fram í dómgæslunni, að spánverjar fengu að spila ótrúlega langar sóknir.  Jafnvel þó höndin væri komin upp, - þá kom alltaf óvæntur séns hjá dómurunum.  Alltaf aðeins lengri tími gefinn og aukakast eftir atvikum.

Í venjulegum handboltaleikjum sér maður yfirleitt aldrei slíkt þema hjá dómurum yfir heilan leik.  Þetta verður líka svo erfitt fyrir vörnina, að þeir búast við að dómarinn fari að flauta leiktöf - en flautið kemur aldrei.  Smá saman verður þetta niðurrepandi því vörnin fær oftast marká sig eftir allt erfiðið.


mbl.is „Spánverjar eru sigurstranglegri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. janúar 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband