Fjöldi fólks þarf áfallahjálp eftir framferði framsóknarmannaflokksinns og elítustjórnarinnar.

Fólk þarf samt ekkert að vera hissa á þessu framferði.  Það var margbúið að vara við framsóknarmannaflokki og elítustjórn framsjalla.  Þau varnaðarorð hafa nú öll gengið eftir.  

Framferði ógnarstjórnar elítunnar er alveg í takt við megin kostunaraðila sína LÍÚ-klíkuna.

Hérna hefur LÍÚ-klíkan áratugum saman djöflast á almúganum með fullu samþyggi framsjalla og undir hvatningarhrópum þeirra og flutt menn til og frá á landinu í þeim tilgangi að berja á almenningi og niðurlægja.  Sýna vald sitt.

Að sjálfsögðu sýnir Elítustjórn framsjalla síðan sömu vinnubrögð.

Inní þetta ákveðna dæmi spilar síðan án efa að verið er að veikja umrædda eftirlitsstofnun að beiðni LÍÚ.  

Einhversstaðar hefur verið stigið á rangar LÍÚ tær og klíkan orðið hamslaus af framsjallabræði.  Því hún vill ekkert eftirlit heldur vill fá að göslast í þjóðareignum eftir behag og moka sem mestum fjármunum almennings undir sinn elíturass. 


mbl.is Vill fund um Fiskistofuflutning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt eftir bókinni í leikjum dagsins. Frakkland og þýskaland mætast í næstu umferð.

Nígería og Alsír spiluðu þó að mörgu leiti vel á köflum - en andstæðingar þeirra voru sterkari á heildina litið og sér í lagi er leið á leiktímann.

Þarna skiptir barasta hefðin og reynslan svo miklu máli.  

Eftir þessa leiki er samt vandasamt að meta styrkleika Frakka og þjóðverja.  Bæði lið hafa á tímabilum sýnt mikinn styrk en þess á milli hafa þeir verið dáldið rólegir.

Maður hefur á tilfinningunni að þeir hafi verið að spara aukatankinn og ætli að tengja hann þegar á þarf að halda.

Frakkar sýndu kraft sinn í riðlakeppninni gegn Sviss í byrjun leiks og þjóðverjar gegn Portúgal.

Það er ógerningur að spá fyrir um hvernig innbyrðis leikur nefndra þjóða fer - en að mínu mati eru þjóðverjar örlítið sterkara lið.  Örlítið.

Frakkar hafa að vísu sýnt að þeir geta leikið frábæran sóknarleik - en þá kemur á móti að ekkert grín er að fá skyndisóknir frá þýskalandi.  Það er því efasamt að Frakkar leggi í mikinn sóknarleik gegn þjóðverjum.

Sennilegast verður því leikurinn taktískur og bæði lið munu vilja forðast öll slys eða óþarfa áhættutökur.

Í slíkum leik er þýskaland örlítið sterkara, að mínu mati.  Þeir eru aðeins fjölhæfari og jafnframt aðeins meira lið.  Massífari liðsheild.

Það skiptir líka miklu máli hjá þeim þýsku, að svo virðist sem litlu breiti þó þeir þurfi að setja menn inná af bekknum.  Mennirnir af bekknum smellpassa alltaf inní heildina og það tekst varla eftir því að skipt hafi verið.  

Það er meiri fjölhæfni og breidd hjá þjóðverjum og betra skipulag á liðsheildinni.

En hitt er svo sannað mál, að franska liðið hefur gríðarlega sterka einstaklinga sem fátt fær staðist ef þeir ná að stilla sig saman.

Það stefnir því í magnaðan leik. 


mbl.is Þjóðverjar höfðu úthaldið í framlengingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. júlí 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband