Ætla Sjallar að svíkja þjóðina um 11.000 milljarða ísl. króna? Þeir ætla sennilega ekki að kæra Breta.

,,Tillaga til þingsályktunar um málshöfðun og skaðabótakröfu á hendur breska ríkinu, Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu vegna beitingar hryðjuverkalaga. Flm.: Árni Johnsen, Guðlaugur Þór Þórðarson, Unnur Brá Konráðsdóttir.

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn Íslands að höfða mál á hendur breska ríkinu vegna hryðjuverkalaganna sem beitt var gegn Íslendingum við bankahrunið og gegn Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu fyrir afskiptaleysi þeirra. Ríkisstjórnin krefjist skaðabóta að fjárhæð 11.000 milljarðar kr. vegna áhrifa af beitingu hryðjuverkalaganna fyrir sjálfstæði Íslands, virðingu, efnahag og ímynd þjóðarinnar á alþjóðavettvangi."

http://www.althingi.is/altext/140/s/0082.html


Hvað er að frétta af landsfundarsamþykkt Sjallaflokks um að kæra Breta?

,,Landsfundur áréttar að full ástæða sé til að Íslendingar kanni grundvöll þess að sækja rétt sinn gagnvart Bretum vegna beitingar hryðjuverkalaganna haustið 2008 sem verulega skaðaði íslenska hagsmuni."

http://www.xd.is/um-sjalfstaedisflokkinn/alyktanir/utanrikismalanefnd/

Eitthvað að frétta af kærunni??


Hvenær ætla framsjallar að kæra Breta?

Eitthvað að frétta af kærunni??

,,Við framsóknarmenn teljum að Bretana eigi að kæra strax, kæra þá sem samstarfsþjóð á hinu Evrópska efnahagssvæði, kæra þá fyrir ólögmæta og einstaka aðför að lítilli vinaþjóð og fyrir að úthrópa Ísland gjaldþrota. Það gerði forsætisráðherra þeirra. Slík yfirlýsing hafði lamandi áhrif á framsækin íslensk fyrirtæki. Út á þessa yfirlýsingu Browns er verið að stöðva viðskipti Íslendinga um víða veröld fram á þennan dag. —Við Íslendingar töldum okkur starfa samkvæmt löggjöf á forsendum samninga og siðareglna á hinu Evrópska efnahagssvæði. — Við eigum að kæra bresku ríkisstjórnina til Brussel, kæra breska heimsveldið til hæstu skaðabóta. Breskar lögmannsstofur hafa komist að þeirri niðurstöðu að það sé réttur Íslands. Ég hef sannfrétt að til Íslands séu þegar komnir breskir lögmenn vegna Kaupþingsmálsins. Fróðlegt væri fyrir þingnefndir Alþingis, á sviði laga og réttar og viðskipta, að fara yfir stöðu þessa máls með bresku lögmönnunum sem hingað eru komnir. Ég tel enn fremur að við eigum að kæra breska forsætisráðherrann og ríkisstjórn hans sem brotlega þjóð til alþjóðasamfélagsins og öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, framferði þeirra er mannréttindabrot af verstu gráðu."

http://www.althingi.is/altext/raeda/136/rad20081015T142028.html


Bloggfærslur 14. apríl 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband