Laun á dönskum skyndibitastað 2400 á tímann. Bandaríkjamenn forviða.

Þetta er sennilega hærra kaup en læknar fá hér í framsjallafásinni og undir ofríki framsjallaelítu, SFS og ofur-ríkra.  2400 kall á tímann.  8 tíma vinna á dag að sjálfsögðu uppá danska lagið.   Það er ekki að spurja að dönsku velferðinni.  Svona væri þetta líka hér ef Ísland væri enn aðili að Danmörku.

,,COPENHAGEN — On a recent afternoon, Hampus Elofsson ended his 40-hour workweek at a Burger King and prepared for a movie and beer with friends. He had paid his rent and all his bills, stashed away some savings, yet still had money for nights out.

That is because he earns the equivalent of $20 an hour — the base wage for fast-food workers throughout Denmark and two and a half times what many fast-food workers earn in the United States.

,,You can make a decent living here working in fast food,"  said Mr. Elofsson, 24. ,,You don’t have to struggle to get by."

http://www.nytimes.com/2014/10/28/business/international/living-wages-served-in-denmark-fast-food-restaurants.html?_r=1#


Hefur eitthvað frést af framsóknarmönnum?

Þeir virðast gjörsamlega horfnir þeir framsóknarmenn.  

Ýmislegt bendir til að ríkisstjórnin sé alveg við það að springa. 

Framsóknarmenn með allt á hælunum.  Búnir að bulla og þvaðra svo mikið.

Sjallaflokkur er náttúrulega bara eins og hann er og hefur alltaf verið meira og minna.  Hagsmunasamtök elítu og ofur-auðmanna ásamt efsta lags samfélags.  Það breytist ekkert.

Það vita allir sem vilja vita að sjalla eru óvinir almennings og þjóðar og tilgangur þeirra politískt er að böðlast á almenningi, seilast í vasa hans,  og moka síðan undir elíturassa.

Framsóknarmannaflokkur hefur hinsvegar fært sig yfir á þjóðernislegt popúlískt lýðskrum og bullaði allt of mikið síðustu ár.  Þeir eru búnir að vera.  Horfnir.  Skammast sín og þora ekki að láta þjóðina sjá framan í sig.  Sem vonlegt er. 


Bloggfærslur 30. október 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband