Líklega mun þjóðríkið í upphaflegum skilningi leggjast af innan ekki svo langs tíma.

Alveg spurning samt hve langan tíma það tekur en að mínu mati má þegar greina gríðar breytingar á viðhorfum til þjóðríkja.  Ef veldi þjóðríkja minnka mun þjóðernishyggja í nútímaskilningi jafnframt minnka eðli máls samkvæmt.    Þjóðríkið er að mörgu leiti barn síns tíma en meikar lítinn sens í dag vegna gjörbreytinga á öllum háttum í samfélögum, samgöngum, tækni og samskiptum. Vissulega munu átthagar enn hafa sterk áhrif, römm er sú taug etc, - en að blanda þjóð eða þjóðríki inní áhhagakennd er tíska á fallandi fæti.  Allt mun þó taka tíma.  Við sjáum núna ákveðinn vonlausann þjóðrembing í gangi, brexit, trump o.s.frv en sennilegast og vonandi eru nefnd atriði einfaldlega tákn um minnkandi vægi þjóðríkja í breiða samhenginu og risastóru myndinni.

 


Það er kyrrlátt kvöld við fjörðinn.

Og ryðgað liggur bárujárn við veginn.

Það eru engin hrogn að koma.

Svo mikið er víst.


mbl.is „Við erum að feta í fótspor feigðarinnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er fagur svipur á forsvarsmanni útgerðarmanna

eins og sjá má á fyrstu mynd í frétt.  Hann er meir að segja orðinn svarthvítur.  Þetta lítur ekki vel út.


mbl.is Fundur að hefjast í sjómannadeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur handbolti á niðurleið.

Er auðvitað orðið svo mikið úrval af íþróttum og fólk er að standa sig vel í mörgum greinum.  Handbolti er ekki eins einráður og hann var hér uppi lengi vel.

Auðvitað átti Ísland að vinna Túnis.

Túnis var að gera grunn handboltamistök trekk í trekk og reynsla Íslands og kerfishandbolti hefði auðveldlega átt að ráða við túnisbúa.  En nei!  Túnis var í raun aðeins sterkara í heildina og Ísland heppið þegar upp var staðið að ná einu stigi.

Það er svo sem margir þættir sem mættu vera betri hjá Íslandi en sóknarleikurinn er nánast enginn.

Að mínu mati er skýringin á döprum sóknarleik sá, að það eru einfaldlega ekki nægilega sterkir og fjölhæfir menn fyrir utan.  

Skyttustöður í nútímabolta byggja ekki eingöngu á að geta skotið fast á markið.  Byggir líka á leikskilningi, gegnumbrotshæfileikum og sendingargetu á línu eða í horn.

Það er ekkert ofantalið sem Ísland hefur hjá útispilurunum nema skothæfileikinn.  

Bestu handboltaliðin, ss. Frakkland, Spánn, fv. Júgúslavía og fleiri, geta hinsvegar auðveldlega ráðið við sóknir sem hafa ekki fjölbreytileika í útfærslum.  Þeir beina einfaldlega skyttunum í erfiðar skotleiðir og markmaður sér um rest.  Menn verða að geta tekið einn á einn, gegnumbrot, snögg skot af gólfi o.s.frv.  Það er ekkert í gangi í íslensku sókninni nema langskot.

 


mbl.is Ákveðnir leikmenn ekki náð sér á strik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband