Bandaríkin gefast upp á að verja framferði ísraelsstjórnar - engan bilbug að finna á stuðningsmönnum Israels hér á landi.

Það er athyglisvert hve stuðningsmenn hrottaframferðis israelsstjórnar hér á landi ganga hart fram í stuðningi sínum, aðallega framsjallar.

Það er ekki til það óhæfuverk israelsstjórnar sem stuðningsmenn nefndrar stjórnar hér á landi stökkva ekki fram til að verja oftast í frasarmáli og með grautarlegri hugsun og sýn.

Nú hafa Bandaríkjamenn gefist upp á að verja Israel - engan bilbug að finna á stuðningsmönnum hrottaframferðis Israelsstjórnar hér á landi.  Engan bilbug.

Af þessu verður auðvitað að draga ákveðnar ályktanir. 


mbl.is Árásin „óásættanleg og óverjandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur fær að finna fyrir svipu framsjallaelítunnar.

,,Þeir sem fá fyr­ir­fram­greidd­ar vaxta­bæt­ur á hverj­um árs­fjórðungi hafa vafa­lítið tekið eft­ir að þær eru um­tals­vert lægri þenn­an árs­fjórðung en þær voru á síðasta ári. Ástæðan er sú að tíma­bund­in hækk­un á há­marks­fjár­hæð vaxta­bóta féll úr gildi um síðustu ára­mót. Af því leiðir að sam­kvæmt gild­andi lög­um verður há­mark vaxta­bóta, sem koma til út­borg­un­ar 2015, um helm­ingi lægra en á þessu ári, eins og seg­ir á síðu Rík­is­skatt­stjóra."

Og þetta kusu kjósendur framsjalla yfir þjóðina og landið?   


mbl.is Vaxtabætur lækka um helming
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkleg uppstilling Brasilíu gegn Þýskalandi.

Mikið hefur verið spekúlerað í hvernig Scolari muni bregðast við því að Neymar og T. Silva verða ekki með.    Sennilegast mun Scolari halda nokkurnvegin 4-2-3-1 strategíunni.  Sennilegast.

Þá mun Dante koma inn fyrir  Silva og Willian fyrir Neymar.  Eða í rauninni Oscar fari  í stöðu Neymars og Willian út á vænginn.  

Þá hefur talsvert verið spáð í hvort Paulinho og  Fernadinho haldi sínum stöðum en þeir spiluðu að mörgu leiti ágætlega saman gegn Colombiu eða hvort Gustavo komi aftur inn.  Fernandinho er líklegri til að halda sinni stöðu.  Kæmi ekki á óvart að sjá Gustavo inni fyrir Paulinho.

Þá er ennfremur líklegt að  Maicon haldi sinni stöðu og Alves komist ekki að.

Það er alveg ljóst að Brasilíska liðið er feikilega öflugt.  

Þjóðverjar verða að sýna afar góðan leik og taktískt vel útfærðan ef þeir ætla að ná sigri.  

Líkleg uppstilling Brasilíu er þessi:

Julio Cesar.

Maicon, David Luiz, Dante, Marcelo.

Fernandinho,  Gustavo.

Willian, Oscar, Hulk.

Fred.


mbl.is Scolari: Neymar búinn að skila sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og á svo að kæra breta og bandaríkjamenn eða?

,,Tillaga til þingsályktunar um málshöfðun og skaðabótakröfu á hendur breska ríkinu, Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu vegna beitingar hryðjuverkalaga. Flm.: Árni Johnsen, Guðlaugur Þór Þórðarson, Unnur Brá Konráðsdóttir.

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn Íslands að höfða mál á hendur breska ríkinu vegna hryðjuverkalaganna sem beitt var gegn Íslendingum við bankahrunið og gegn Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu fyrir afskiptaleysi þeirra. Ríkisstjórnin krefjist skaðabóta að fjárhæð 11.000 milljarðar kr. vegna áhrifa af beitingu hryðjuverkalaganna fyrir sjálfstæði Íslands, virðingu, efnahag og ímynd þjóðarinnar á alþjóðavettvangi."

http://www.althingi.is/altext/140/s/0082.html

Eða ætla framsjallar að svíkja þjóðina um 11.000 milljarða??? 


mbl.is 10 milljónir fyrir skýrslu Hannesar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða strategíu mun Scolari og Brasilíska þjálfarateymið nota þegar Neymar verður ekki með?

Mikið hefur verið  rætt um meiðsli Neymars hins Brasilíska og þar með brotthvarf frá HM.  Sumir hafa talað líkt og Brasilíska liðið væri búið að vera án Neymars.  Að mínu mati er það langt í frá svo.  Langt í frá.  

Vissulega verða brasilíumenn að rótera í liðinu og það bætist ofan á að T. Silva er í banni fyrir næsta leik.

En málið er að Brasilíumenn eru afar vel mannaðir og hingað til á mótinu hefur það í raun verið liðsheildin sem hefur skipt mun meira máli en Neymar.  Neymar er auðvitað mjög fær leikmaður og snjall - en það er langt í frá að hann þurfi endilega að vera ómissandi.

Brasilíumenn hafa meir að segja nokkra valkosti en tveir meginkostirnir væru að í fyrsta lagi halda skipulaginu í aðalatriðum sem verið hefur, 4-2-3-1,  og setja Oscar í stöðu Neymars.  Hann hefur áður sýnt mikinn styrk í slíku hlutverki og getur líka dottið djúpt afturávið þegar það á við.

Þessi lausn þýddi að  einhver yrði að taka stöðu Oscars og hugsanlega gæti Willian tekið þá stöðu.  (þó hefur heyrst að Willian hafi kvartað undan eymslum á æfingu nýverið en það er þó allt óstaðfest.)  Það er líka möguleiki á að Bernard hinn smávaxni fengi tækifærið.  En sá er ókunnur mörgum íslendingum.  Leikur með Shakhtar Donetsk og álitinn mikið efni.  Kraftmikill og trikkí leikmaður.

Hinsvegar gætu Brasilíumenn alveg tekið upp breytt leikskipulag svo sem 4-3-3 með Oscar og Hulk fremsta ásamt Fred þegar við ætti.  það væri sennilega öruggara ef haft er í huga að næsti andstæðingur er þýskaland.    Scolari hefur nokkrar útfærslur varðandi 4-3-3 strategíu og þyrfti ekki að setja inn Willian eða Bernard heldur gæti róterað öðrum eftir behag.

Samt er ekkert ólíklegt að hann haldi  Fernandinho og Paulinho í sínum stöðum þrátt fyrir að Gustavo komi til baka.  

Þeir hafa rosalega marga möguleika með liðið þeir brasilíumenn - innan viss ramma strategískt séð.

Hér má sjá Bernard:

 


Mál það varðandi lánasamninga er vísað var til EFTA snýst í raun um nokkra þætti.

Það var ekki aðeins spurt hvort verðtrygging væri heimil heldur líka hvort það lánaform eða tæknileg útfærsla á lánasamningum væri samkvæmt Evrópulögum heimil að miðað við 0% verðbólgu  þegar heild­ar­lán­töku­kostnaður ásamt ár­legri hlut­fallstölu kostnaðar er reiknaður út.

Í framhaldi er þá spurningin hvort það að miðað við 0% verðbólgu flokkist sem óréttmætir skilmálar í lánasamningum samkvæmt þar til gerðu dírektífi ESB.

Í staðinn fyrir að miða við 0% verðbólgu vilja sumir meina að miða ætti við verðbólgu á lántökudegi.

Þegar af þessum sökum er ljóst að málið snýst um tæknilegar útfærslur á lánasamningi.

Í viðkomandi samningum er tekið fram, og stundum oft, að lánið miðist við neysluvísitölu samkvæmt þar til gerðum reglum og taki breytingum eftir því.

Spurningin er því eiginlega hvort það dugi eða hvort þurfi að setja ákveðna verðbólguprósentu inní útreikninga um árlega hlutfallstölu. 


mbl.is Tekist á um lögmæti verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldarleikur Þjóðverja taktískt séð.

Það gekk eftir sem sumir höfðu spáð, að Þjóðverjar væri taktískt sterkara lið heldur en frakkar og að fyrirfram væru þjóðverjar sigurstranglegri: http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1404416/

Þó má segja að munurinn milli liðanna var etv. meiri en flestir áttu von á.

Það gekk að vísu allt upp hjá þjóðverjum og þeir náðu marki úr föstu leikatriði mjög snemma - og eftir það fannt mér Frakkland lítinn séns eiga.  

Sérlega kom á óvart að frakkar skyldu ekki geta ógnað Þýskalandi meira í seinni hálfleik.  Þjóðverjar einfaldlega drápu leikinn með afar snjallri og yfirvegaðri útfærslu taktískt séð.  Liðsheildin algjörlega óaðfinnanleg.  Það kom aldrei feilpúst í strategíu þjóðverja.

Sumir hafa nefnt að einkennilegt hafi verið að frakkar skyldu ekki senda meira langa bolta  innfyrir vörn þjóðverja og láta reyna á kapphlaup.  En þjóðverjar léku á stundum með öftustu línu framarlega og flatt uppá að nýta sér rangstöðueffektinn og talað hefur verið um að sumir varnarmanna þýskalands séu frekar hægir.

Eg veit það ekki, það þarf að horfa oftar á suma kafla leiksins til að greina það atriði algjörlega - en mér fannst samt frakkar stundum vera að reyna það.  þ.e. senda langa bolta innfyrir.  Það barasta gekk ekkert.  Þjóðverjar voru svo fljótir að lesa öll útspil frakka að viðkomandi varnarmenn voru snöggir afturávið þegar við átti. 

Hitt er svo annað mál, að ekki var þessi leikur kannski neitt skemmtilegur áhorfs lengst af - nema þá uppá að skilgreina dýpri strategíur og taktík.   Og það hafa ekki allir gaman af því. 


mbl.is Hummels kom Þjóðverjum í undanúrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að frétta af 500 milljónum Evra, alvörumynt, sem framsjallar náðu frá almenningi korter í hrun?

,,Margumrætt 500 milljóna evra neyðarlán sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi á lokasprettinum að falli bankans skilaði sér ekki, nema í litlum mæli, til Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Þetta kemur fram í nýlegum dómi við High Court í London í máli Kaupþings gegn breskum stjórnvöldum. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að úr dóminum má lesa að ef lánið hefði verið sent til Bretlands mátti hugsanlega koma í veg fyrir fall Kaupþings."

http://www.m5.is/?gluggi=frett&id=94963

Eitthvað að frétta? Eitthvað um þessa sjóðstæmingu í LÍÚ-Mogga eða öðrum própagandarörum framsjalla??


Af mannvonsku framsjalla. Rægja og dylgja um einstæða móður.

,,Evelyn Glory Joseph, hælisleitandi frá Nígeríu, sem sögð er „eftirlýst“ á vef innanríkisráðuneytisins, er ekki eftirlýst og hefur aldrei verið það. Þetta hefur DV fengið staðfest.

Evelyn býr í húsnæði á vegum hins opinbera og á fimm mánaða gamalt barn. Hún mætir reglulega í viðtöl hjá Útlendingastofnun. Ummælin á vef ráðuneytisins eru röng, líkt og lögmaður hennar benti á í viðtali við DV í gær."

http://www.dv.is/frettir/2014/7/2/ekki-eftirlyst-raduneytid-dylgjadi-um-evelyn-i-annad-sinn/

 Í framhaldi tjúllast opinberir framsjallar ef spurðir eru útí þetta framferði sitt og eru með dómaskap gagnvart þjóðinni og landinu.

Það segir ákveðna sögu þegar aðstoðaramannalisti þessa svokallaða framsjallaráuneytis er skoðaður.   þar eru heldur ókræsileg dæmi - en svo sem viðbúið af þessu hörmungarliði elítunnar og sérhagsmunaklíka.

Ójafnaðar- og Hálfvitastjórnin er sannlega réttnefni á þessum ósköpum og hörmungum sem ríkisstjórn framsjalla er. 


Stjórna hálfvitar landinu?

Eg fæ tæplega annað sé en þeir sem kosnir voru hérna af meirihluta innbyggja til að stjórna landinu - séu bókstaflega hálfvitar.

Önnur skýring er varla frambærileg en sú að þetta séu barasta hálfvitar.

Hvert asnastrikið og ruglumbullið rekur annað.  Það virðist alveg sama hvað þessi hörmungarstjórn elítunnar reynir að gera - bigtæm klúður!

Í raun er þetta eigi gamanmál - þó vissulega sé skellihlegið sumstaðar að þessum fíflalátum stjórnvalda.

Svo virðist nefnilega að svokölluð stjórnvöld séu algjörlega í vasa harðsvíraðra sérhagsmunaklíka, stóreignamanna og fjármagnsafla og aðeins framlenging á þeim.  Nokkurskonar puppets.

Og þá er auðvitað best að leikbrúðurnar séu hálfvitar.  Best að stjórna þeim þannig. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband