Ísland hefur fengið sitt Jyllands-Posten cartoons controversy.

Það eru sláandi líkindi þarna á milli - að breyttu breytanda að sjálfsögðu.

Vakna ýmsar spurningar.

 Nú finnst mér persónulega þessi teikning óþarflega stuðandi - þó eg átti mig alveg á hvert teiknarinn er að fara.

En finnst framsóknarmönnum þá, sem sagt, að Jyllands-pósturinn og dönsk yfirvöld hefðu átt að biðjast afsökunnar á Jylland-Posten teikningunum á sínum tíma? 

Ef pósturinn hefði gert það og dönsk stjórnvöld gripið strax inní með afgerandi hætti - þá hefði aldrei orið neitt mál úr þeim teikningum.

Eg hef hinsvegar eigi orðið var við að þeir framsóknarmenn væru á þeirri skoðun og hvort stuðningsmenn þeirra voru ekki sumir að pósta þessum teikningum á facebook bara fyrir stuttu í tilefni einhvers afmælis sem eg kann ekki skil á.


mbl.is Sakar Fréttablaðið um einelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíal Demókratar vinna stórsigur í Reykjavík.

Það verður að segjast að það er umtalsvert merkilegt hve Sósíal Demókratar vinna gjörsamlega stórsigur í Borginni í kosningunum á laugardaginn.  Eiga borginna nánast komplít.

Íhaldsmenn eru aðeins að mælast rétt rúmlega 20% og hægri-öfgaflokkurinn framsóknarmannaflokkur er að mælast með um 10%.

Ljóst er að sigur Sósíal Demókrata er það stór, um 60% eða meira,  að verulegt áfall er fyrir samstjórn Íhaldsflokksinns og framsókar í ríkisstjórn.  Verulegt áfall.   


Afhverju hætti Guðni Ágústsson skyndilega við?

Sennileg ástæða er nú komin.

Ljóst er að það að draga einn framsóknarmann inní borgarstjórn með því að ala á andúð gegn minnihlutahóp, þ.e ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, - var plan og plott á efstu levelum ráðandi afla í framsóknarmannadullusokkaflokki.  

Það átti að keyra á þessu efni og það, altso, fyrirfram ákveðið.

Þegar Guðna var tilkynnt það í skuggalegum, reykfylltum skúmaskotum framsóknarflokks - þá leist honum ekki á blikuna.  Vildi ekki láta etja sér á foraðið.  Hann hafði vit á því að neita því.

Það kom aldrei sannfærandi skýring á snöggum viðsnúningi Guðna og málið var hálf dularfullt.

Nú er afar sennileg skýring komin.

Nú, að öðru leiti væri fróðlegt að vita hvort konur í félagi framsóknarkvenna á landsvísu sem Sveinbjörg er formaður fyrir - séu almennt sáttar við þetta.

Svo virðist vera.  Sáttar.  Sem og svokallaður ,,forsætisráðherra", félagsmálaráðherra og allt meginstóð framsóknarmannadrullusokka. 


mbl.is Sakar Framsókn um hræðsluáróður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einarðir ESB menn eru með meira en 70%. Þeir eru sennilega með um 80%. Stórsigur ESB sinna.

Auk þess eru um 10% meira og minna einarðir ESB menn og við erum kannski að tala um um 10% sem eru með allt á hornum sér varðandi ESB.

Þetta er í raun bara svipað og var fyrir og hefur alltaf verið.  10% furðufuglar álíka og framsóknarflokkurinn.

Auk þess ber að undirstrika þá staðreynd að þessir kjánaflokkar eru innbyrðis sundurykkir og ólíklegt er að þeir geti komið sér saman um nokkur hlut að gagni.

Þetta lið verður algjörlega áhrifalaust og munu rústa sjálfum sér með eigin bulli rétt eins og framsóknarmannaflokkurinn hér. 


mbl.is Evrópa yfirgefi Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er rangt. Margt bendir nefnilega til þess að UKIP hafi ekki fengið eins mikið og spár höfðu gert ráð fyrir. Ýmislegt bendir til að hann fái talsvert minna.

Þetta mundu blaðamenn vita ef þeir væru ekki í linnulitlu própaganda og áróðri.  Þeir mundu td. vita að BBC projektaði úrslitin í sveitastjórnum yfir á allt landið, og jú jú vissulega er það ákveðnum erfiðleikum háð og nokkrir fyrirrvarar sem of langt mál er að fara útí,  en þá kom í ljós að UKIP fengi aðeins 17% yfir allt landið.  Þa er stórmerkilegt og mun minna en talað hefur verið um og sumar spár gefið til kynna.
mbl.is Evrópuþingskosningunum lýkur í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Huang Nubo kaupir jörð í Noregi.

Nubo keypti bara 100 hektara rétt si sona í Noregi. Talsverð eftirvænting er varðandi uppbyggingu og fjárfestingar í kommununni í framhaldinu.  

,,Jeg kan love en ny tidsalder for Lyngen kommune. Jeg stoler 100 prosent på at Huang Nubo vil skape enorme og positive ringvirkninger for regionen. Det finnes ikke en bedre kapitalist, sier Giæver jr. til Nordlys.

Ambassadøren besøkte.

Huang og hans eiendomsselskap Zhongkun Group ønsker å utvikle luksuriøse feriesteder i Nord-Europa og har planer om å investere 660 millioner kroner i Norge de neste fem til ti årene, meldte nyhetsbyrået AFP for noen dager siden.

Det hele startet i oktober i fjor da jeg og familien hadde den kinesiske ambassadøren på besøk hjemme i Lyngen. Jeg fortalte jeg hadde landområder som var ferdig regulert og til salgs, og han forklarte meg at han hadde en interessent. 14 dager senere var vi på båttur ute på fjorden med Huang, og viste ham alt Lyngen har å by på, sier Widerøe-pilot Giæver jr. til avisen."

http://www.nationen.no/naering/kinesisk-milliardaer-har-kjopt-1-000-mal-i-troms/


Ríkisstjórnin ræðst á námsmenn og menntun.

Algjörlega fyrirsjánlegt og í stíl við stefnu framsjalla.

Mennta- og heilbrigðiskerfið ásamt hinum verr stæðu  munu fá svipuna á sig frá framsóknarmannaflokknum og sjallamannaflokki til að borga fyrir stórfellda fjárflutninga til hinna betur stæðu. 


mbl.is Breyttar úthlutunarreglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki verið að spila með fólk með öllum þessum ,,íþróttadrykkjum" eða orku/hollustudrykkjum? Jú, held það nefnilega. Verið að spila með fólk.

Eins og kunnugt er hefur ýmislegt heilsutengt verið í tísku undanfarin ár.  Hitt og þetta af venjulegum mat á að vera svo óholt en allskyns möndl og mauk á að vera málið.

Td. með svokallað ,,hámark" og ,,hleðslu", bara sem dæmi, að maður tekur eftir því að fólk er að hamstra þetta.  Jafnframt er þessu oft troðið á áberandi staði í verslunum, við kassann eða þegar gengið er inn etc.

Og er þetta eitthvað holt?  Eg efa það.  Hver segir að þetta sé svo holt?  Bara auglýsingarnar.  Þetta er álíka og lýðskrumskosningalygaloforð framsóknarmannaflokksinns.

Hva?  Er ekki bara þrúgusykur í þessu?  Er það ekki málið bara.  Eitthvað svona púst sem veitir falska kennd um orku tímabundið - en örþreytu stuttu síðar?  Jú, held það.  Eitthvað svoleiðis.  Það er verið að spila með fólk.  Fólk kolfellur fyrir þessu. 


Útgönguspár í Evrópukosningum Í Hollandi: Stórsigur Evrópusinna. Andsinnum hafnað. Frelsisflokkur Wilders biggest loser.

,,EU elections: exit polls says D66 big winner, Wilders biggest loser.

The definitive exit poll from broadcaster Nos confirms that the Liberal democratic party D66 and the Christian Democrats are set to the be the biggest Dutch parties in the European parliament.

The definitive Ipsos poll put the Christian Democrats on 15.2% and D66 on 15.6%, ahead of Geert Wilders’ anti-EU PVV, which went down from 17% to 12.2%. The ruling VVD are up from 11.4% to 12.3% in the poll."

 http://www.dutchnews.nl/news/archives/2014/05/definitive_poll_confirms_d66_a.php


Framsóknarmenn lúskra.

Það passar.  Þeir lýðskrumslofuðu að gera einhver ósköp fyrir ,,heimilin í landinu hérna".   Það var þetta sem þeir meintu.  Framsóknarsvipan á loft.    Og náttúruega einbeita þeir sér að kjördæmi formannsinns.  Að sjálfsögðu.  Svokallaður forsætisráðherra fer fremstur með svipuna sem vera ber.  Og eigi skortir aðstoðarmennina.   Það er skammt að sækja þá.  Þarf ekki að fara langt.  Þeir finnast allir í þingflokknum:

 

49456948778ae73eac520547a441199c

 


mbl.is Ekki heyrt bofs frá þingmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband